13.03.1940
Neðri deild: 16. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 21 í C-deild Alþingistíðinda. (2014)
63. mál, jöfnunarsjóður aflahluta
*Flm. (Sigurður Kristjánsson):
Sökum þess að mál þetta er ekki nýtt hér í d., þarf ég ekki að hafa langa framsögu. Að vísu hafa komið fram ýmis atriði, er allmikla þýðingu hafa, síðan málið var flutt á síðasta Alþ., en samt get ég farið fljótt yfir sögu. Eðli málsins er það, að sökum þess, að sjávarútvegurinn hefir gengið mjög erfiðlega um mörg undanfarin ár, var svo komið, að þeir menn, sem bundnir eru við störf á skipum, sem hafa hlutaskipti, og voru ár eftir ár á sömu skipunum, fóru að ganga frá að vertíð lokinni svo að segja með tvær hendur tómar. Stundum fengu þeir alls engan aflahlut og stundum mjög rýran. Nú er eðlilegt, að menn muni trénast upp á því að binda sig við atvinnu, sem ekki gefur neinn arð, en vera þó bundnir við þetta starf svo mánuðum. skiptir. Það er hægt að segja, að á slíkum atvinnuleysistímum sem þeim, er yfir þetta land hafa gengið, þá sé í raun og veru ekki að öðru mikilsverðu að hverfa fyrir þá menn, sem verið hafa skipverjar á íslenzkum fiskiskipum. En það er þó svo, að ef menn eru alveg óbundnir, þá geta þeir oft fengið vinnu um lengri eða skemmri tíma, en hafi þeir bundið sig við að vera á skipi, er alls ekki um það að ræða, að þeir geti bjargað sér með annari vinnu einn einasta dag. Þessi miklu vandræði leiddu að sjálfsögðu til þess, að skipverjar fóru að gera kröfu til þess að fá tryggingu fyrir einhverju kaupi, er þeir réðu sig á fiskiskip, og ekki var unnt að krefjast þeirra trygginga annarstaðar að en frá umráðamönnum útgerðarinnar, útgerðarmönnunum. En nú var svo komið, eins og kunnugt er, að mikill fjöldi af útgerðarmönnum var einnig kominn í fjárþrot, og þó að útgerðin vildi gjarnan setja einhverjar tryggingar fyrir kaupi skipverja, var það ekki hægt, nema með aðstoð lánardrottna, því að tryggingar, sem væru settar á pappírinn af eignalausum mönnum, myndu verða ákaflega lítils virði, ef aflinn brygðist, en ef aflinn bregzt ekki, þá þarf ekki á tryggingunum að halda.
Engu að síður hefir þetta á undanförnum árum orðið alvarlegt ágreiningsmál milli þeirra, sem eiga útgerðina, og hinna, sem vinna við útgerðina, og af því hefir leitt, eins og kunnugt er, að nærri lá, að útgerðin yrði algerlega stöðvuð yfir heilar vertíðir. Það er nú skiljanlegt, að íslenzka þjóðfélagið má ekki við því að láta slíkt ástand haldast. En tryggingar slíkar sem þessar er hvergi að fá, nema þá hjá lánardrottnum útgerðarinnar, en með því líka að þessir lánardrottnar, sem eru bankarnir, hafa alls ekki viljað samþ. þetta, að vera ábyrgir fyrir aflahlut skipverja, þá er þetta mál komið í fullkomið öngþveiti. En eitt er við þetta að athuga, sem sé að frá þjóðhagslegu sjónarmiði séð er engu að síður hin mesta nauðsyn að tryggja hlut útgerðarinnar sjálfrar, þ. e. a. s. ekki síður eigenda skipanna heldur en hásetanna.
Nú er það ekki einungis mín hugmynd að koma upp einhverri stofnun, sem gæti styrkt þessar tryggingar og séð fjölda útgerðarmanna og sjómanna fyrir sæmilegum tekjustofnum í þessari atvinnugrein, heldur eru og margir þeirrar skoðunar, að eina ráðið til að taka ölduganginn af sé það, ef svo mætti takast, að hagur útgerðarinnar og þeirra, sem að útgerð vinna, yrði tryggður á þann hátt, að láta eitthvað af arði betri áranna ganga til þess að tryggja afkomu þeirra ára, sem lakari yrðu og aldrei þarf að efast um, að muni koma með lengra eða skemmra millibili.
Þetta frv., sem var flutt á síðasta þingi og lá bæði fyrir fyrra og síðara hluta þess, er tilraun til bjargar út úr þessum þjóðfélagsvandræðum, og eins og þá var tekið fram af mér sem flm. þess, er hér um mál að ræða, sem ekki er unnt að setja neinar afgerandi reglur um. Tíminn einn getur leitt það í ljós, hvernig þessar reglur standast; en einhverntíma verður að byrja á þessu, ef þetta öryggi á að komast u, og þess vegna er það, að ég flyt nú þetta frv.
Það má segja, að því hafi yfirleitt verið vel tekið hér á Alþ. að því er orðin snertir; þm. hafa farið vingjarnlegum orðum um frv. hér á þinginu og einnig í sjútvn. Að vísu hafa verið skiptar skoðanir um einstök atriði þess, en það er nú svo, að einkanlega þau mál, er snerta sjávarútveginn, hafa ætíð haft langan ómagaháls hér á Alþ., og engin mál mætt meiri tregðu eða tortryggni en þau, er fjalla um sjávarútgerð, hjá löggjafarþingi þjóðarinnar, og það þýðir ekki að vera vanstilltur út af því. Málefni, sem hafa heilbrigði í sé fólgna, hljóta að sigra, ef þolinmæði er með. Ég vonast því til þess, að þessu máli verði ráðið til lykta eins og nauðsyn krefur og að það sé ómaksins vert að flytja þetta frv. og fylgja því eftir.
Ég hefi farið fram á það við sjútvn. Nd., að hún flytti þetta frv. Sjútvn. hefir tekið vinsamlega í málið, eins og í fyrra, og tjáði sig samþykka þessari hugmynd, en ágreiningur um einstök formsatriði hefir orðið þess valdandi, að sjútvn. tók ekki að sér að flytja frv. Nú birtist þetta frv. hér í örlítið breyttri mynd frá því, sem það var í, er hv. Nd. afgr. það á síðasta þingi. En ég hefi reynt við samningu þessa frv. að samrýma það við flestallar þær kröfur, sem fram komu. Aðalaths., sem fram kom við upphaflega frv., var þess efnis, að samkv. því átti þessi trygging að verða skyldutrygging um allt landið. En þegar frv. var afgr. frá þessari d. í fyrra, var orðin sú breyt. á, að þetta var e. t. v. að meira en að hálfu leyti frjáls trygging. Nú hefi ég samið þetta frv. upp, en meiri hl. af gr. þess er alveg óbreyttur; þó hefi ég reynt að gera það þannig úr garði, að þessar tryggingar verði alveg frjálsar, ekki aðeins að þessum félagsskap manna í kaupstöðum og sveitarfélögum, þar sem útgerðarstaðir eru, sé frjálst hvort hann vill hafa þessar tryggingar eða ekki, heldur geti einstaklingar líka haft þær út af fyrir sig. Ég held, að með því að gera þessar tryggingar eins frjálsar og hér er gert nái frv. til fleiri manna en áður var, og verði það í fullu samræmi við tilgang þess. En eins og ég hefi áður sagt, getur tíminn einn leitt í ljós, hvaða form sé heppilegast. Ég hefi gengið inn á það að slá af ýmsum atriðum. sem gerðu frv. harðara og öruggara í upphafi, einmitt til þess að frelsið reyndist sem mest í frv. Ég sé ekki ástæðu til að rekja efni frv. meira en þetta, vegna þess að það var gert á síðasta Alþ., og þá fylgdi því ýtarlegri grg. en nú.
Ég vil að lokum bæta því við, að mér hafa borizt óskir frá fjölmörgum mönnum, síðan síðasta Alþ. lauk, um að ég flytti frv. aftur. Síðasta fiskiþing samþ. ályktun um að skora á alþ. að samþ. frv. í því formi, sem það var í, er það var afgr. frá þessari d. á síðasta þingi, og frv. er nú borið fram mjög lítið breytt frá því, sem það var þá. Ég vil fara fram á, að frv. verði aftur vísað til sjútvn., og ég vænti þess, ef svo er, sem ég efast ekki um, að n. meinar, að hún áliti málið þarft og gott, að þá muni líka allir þm. n. sammála um það og vilji flýta fyrir því, svo að það geti náð lögfestingu á þessu Alþ.