18.03.1940
Neðri deild: 20. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 47 í C-deild Alþingistíðinda. (2037)
35. mál, rafveitulánasjóður
*Fjmrh. (Jakob Möller):
Ég vildi aðeins leiðrétta misskilning, sem kom fram í ræðu hv. 1. þm. Rang. um það, að afnotagjöld af rafmagni væru langtum lægri hér en annarstaðar á Norðurlöndum. Þetta er allmikill misskilningur eða á röngum upplýsingum byggt. Rafmagn til ljósa er nokkru ódýrara í Danmörku en hér á landi. þrátt fyrir það, þó að það sé þar framleitt með kolum. En nýlega hefir það að vísu hækkað þar aftur vegna verðhækkunar á kolum. Í Noregi er rafmagn langtum ódýrara en hér á Íslandi. Ég skal geta þess, að sambærileg notkun með hemlamælum er hér 330 kr. kwst., en þar 150–200 kr. kwst. Hinsvegar mun umframnotkun vera þar eitthvað álíka dýr sem hér. Eina landið á Norðurlöndum, þar sem verð á rafmagni til almennrar notkunar er nokkru hærra en hér á Íslandi, er Svíþjóð, en það stafar af því, að þar í landi er alls ekki sótzt eftir því, að rafmagnið verði tekið til almenningsnotkunar, heldur fyrst og fremst og sérstaklega fyrir iðnaðinn. Annars snerist ræða hv. 1. þm. Rang. mest um það, að komizt yrði að niðurstöðu um, hverskonar rafmagn og rafveitur myndu henta bezt á hverjum stað. Hér á landi eru rafveitur sérstaklega gerðar með almenningsnotkun fyrir augum, og af því leiðir, að miða verður við það, hvernig unnt er að selja almenningi rafmagnið, og óhjákvæmilegt er að reyna að láta rekstur rafstöðvanna bera sig sem bezt, miðað við þá rafmagnsnotkun, sem nú er. Það hefir verið talað um, að það yrði að ganga svo langt sem fært væri til móts við rafmagnsnotendur til að rafmagnið yrði notað sem mest hér á landi, af þeim ástæðum, að það myndi hafa í för með sér minni kaup á útlendum varningi, og það væri þjóðarheill og hagur landsmönnum, að innflutningur yrði sem minnstur á honum. En þrátt fyrir það, að rafmagnstaxtinn er einmitt miðaður við almenningsnotkun hér á landi, er taxtinn þó talsvert lægri í Noregi en hér.