03.04.1940
Efri deild: 28. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 191 í B-deild Alþingistíðinda. (207)

5. mál, innheimta ýmissa gjalda 1941 með viðauka

Frsm. (Bernharð Stefánason):

þetta frv. hefir gengið gegnum hv. Nd., og fjhn. þessarar d. hefir athugað frv. og borið það saman við 1. um þetta efni, sem áður hafa verið samþ. og gilda fyrir yfirstandandi ár. Þetta frv. er shlj. þeim l. að öðru leyti en því, að ártalið er annað. Fjhn. lítur svo á, að ríkissjóður megi ekki missa af þeim tekjum, sem þetta frv. gerir ráð fyrir, og leggur því til, að það verði samþ. óbreytt.