28.02.1940
Neðri deild: 6. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 75 í C-deild Alþingistíðinda. (2072)
19. mál, verðuppbót á kjöti og mjólk
*Forsrh. (Hermann Jónasson):
Hv. þm. Seyðf. virtist misskilja orð mín um kjötverðið á innlenda og erlenda markaðnum. Vitanlega átti ég við verðið utan- og innanlands eins og það var í haust, enda er það eitt af þeim misskilningi, sem komið hefir fram viðvíkjandi verðhækkun á kjöti, að það er ekki gætt að þeim kostnaði, sem verður við að geyma kjötið í frystihúsunum. Þetta er af fjölda manna misskilið nú, þegar fólk er sem viðkvæmast fyrir allri verðhækkun.
Um það, hvort verðhækkunin sé sanngjörn eða réttlát, sem hv. þm. segist ekki viðurkenna, að sé, þá vil ég benda á það, sem ég minntist á áðan, að framleiðslukostnaður bænda hefir stóraukizt, og jafnframt því hafa flestar erlendar lífsnauðsynjar hækkað um 50–80%. Samt hafa þessar vörur ekki hækkað um nema 19%, eða um 1/4 af því, sem erlendar vörur hafa hækkað, og ætti það ekki að verða til þess, að fólk neytti síður innlendu vörunnar en þeirrar erlendu, því að munurinn er stórkostlegur.
Hv. þm. segir, að ekki hafi verið þörf á að beita valdboði í þessu tilfelli. Vitanlega er það ekki annað en valdboð, ef á að nota vald útflutningsnefndar til þess að koma í veg fyrir, að bændur geti flutt vöru sína á markað og selt hana þar því verði, sem þeir geta fengið fyrir hana, en setja hana fasta og skipa þeim að selja hana undir verði.
Ég vil í því sambandi benda á, að ef þessi leið væri farin, — hvers vegna ætti þá ekki líka að taka fiskinn og skipa mönnum að selja hann undir verði hér innanlands? Það væri alveg það sama, nema að því leyti, að af fiskinum er ekki selt nema örlítill hluti af því, sem aflast, og þess vegna ætti það að muna litlu fyrir þá stétt, en það, sem bændur selja af þessari aðalframleiðslu sinni á innlendum markaði, er helmingur af því, sem þeir framleiða af þessari vöru, og meira til. Ef á að gera þetta gagnvart einni stétt — hvers vegna þá ekki að gera það líka gagnvart öðrum stéttum, og þá fyrst og fremst þeim, sem afla fiskjarins? Það ætti þá að taka hann af sjómönnunum, þegar þeir kæmu í land með hann, ákveða verðið á honum og segja: Þetta megið þið selja hann, og meira ekki. Það getur ekki verið, að hv. þm. vilji taka eina stéttina út úr með þetta og það stétt, sem hefir átt eins örðugt og sauðfjárbændur nú hin síðari ár vegna þess vágests, sem ríkt hefir í landinu nú hin síðari ár, sem hefir orðið til þess, að fjöldi bænda hefir komizt svo að segja á vonarvöl, svo að Alþingi hefir orðið að veita stórar fjárhæðir til þessara manna, svo að þeir gætu dregið fram lífið, og þá hlýtur hver maður að sjá, að það getur ekki verið sanngjarnt að taka vöruna af þessum mönnum og selja hana undir verði.
Ég held, að það sé ómögulegt að finna nein rök fyrir því, að þessi verðhækkun var gerð. En þetta er mönnum viðkvæmt mál, og sumpart af því og sumpart af ókunnugleika myndast almannaskoðanir um þetta mál, og ég hygg, að ræða þessa hv. þm. hafi verið bergmál af þeim, án þess að hann hafi hugsað þær ofan í kjölinn, því að ef þetta mál hefði verið rannsakað og athugað, þá er ómögulegt annað en að menn hefðu komizt að raun um, að þar hefði ráðið full sanngirni.
Hv. þm. segir, að beitt hafi verið valdboði í sambandi við aðrar vörur, svo sem síldarmjöl. Ég skal upplýsa, að því máli er þannig háttað, að í sumar voru samningar gerðir um þessa vöru, og þá var samið um verðið, og var það gert áður en verðhækkunin kom, og þeim samningum var vitanlega ekki hægt að rifta við bændastéttina frekar en aðra kaupendur á þeirri vöru. En það er rétt hjá hv. þm., að vegna erfiðleika landbúnaðarins hefir á ýmsa lund orðið að rétta honum hjálparhönd upp á siðkastið, en það eru rök fyrir mínu máli, en ekki hans, og sannar, að það verður a. m. k. að sýna þessari stétt þá sanngirni, sem hún á heimtingu á um verðlag á sinni vöru, þegar ekki hefir heldur verið farið með meiri ósanngirni í sakirnar en ég hefi nú bent á.
Ég er fús til að gefa þeim hv. þm., sem þess óska, skýrslur um þessi mál og allar þær upplýsingar, sem til eru um það efni, því að á því veltur mikið fyrir okkur alla, að hægt sé að fá frið um þessi mál og útkljá þau með sanngirni. Ég fer ekki fram á annað fyrir bændastéttina, en frá því vík ég heldur aldrei.