05.03.1940
Neðri deild: 10. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 90 í C-deild Alþingistíðinda. (2087)

36. mál, búfjársjúkdómar

*Flm. (Jón Pálmason):

Þetta frv. á þskj. 43, um búfjársjúkdóma og varnir gegn þeim, er samið af mþn. í tilraunamálum landbúnaðarins, en að því er hina fræðilegu hlið málsins snertir, sérstaklega II. kafla frv., hefir n. notið aðstoðar Ásgeirs Einarssonar dýralæknis.

Eins og tekið er fram í grg. frv., er tilgangurinn með frv. þessu að koma í fast kerfi öllum lagaákvæðum um búfjársjúkdóma og varnir gegn þeim og herða á ákvæðum l. um varnir gegn því, að næmir búfjársjúkdómar berist til landsins. Á þessu sviði hafa, sem kunnugt er orðið svo mikil óhöpp á undanförnum árum, að fullkomin ástæða er til, að Alþingi geri til þess ýtarlegar ráðstafanir, að slíkt endurtaki sig ekki, og er tilgangur frv. að koma í veg fyrir. að framhald verði á þessum óhöppum. Það verða eflaust skiptar skoðanir um það, hvort tekizt hefir með frv. þessu að koma lagaákvæðum um þetta í hið heppilegasta horf, en hitt hygg ég, að verði ekki um deilt, að nauðsyn beri til að koma varnarráðstöfunum gegn búfjársjúkdómum í fast kerfi, þannig að ekki þurfi sífellt að setja ný og ný lög, þótt einhver ný óhöpp kunni að bera að höndum í þessu efni. Á undanförnum árum hefir sífellt verið deilt um þetta, eins og t. d. um varnir gegn fjárkláðanum, en með þessu frv., ef að lögum verður, ætti að vera hægt að koma í veg fyrir það, að Alþ. þyrfti að blanda sér í það, þótt breyta þyrfti til um framkvæmd þessara mála, því að það væri þá á valdi stj. á hverjum tíma að ákveða slíkt með reglugerð.

Ég mun ekki fara nánar út í einstaka kafla frv. við þessa umr., en vil aðeins geta þess, að samkv. niðurlagsgr. þess falla ekki færri en 6 lagaákvæði úr gildi, er snerta búfjársjúkdóma. Það eitt sýnir, að full þörf var á að koma þessum ákvæðum í fast kerfi, og það ætti jafnframt að tryggja það, að þeir menn væru betur vakandi en ella, sem hafa framkvæmd þessara mála með höndum, svo sem lögreglustjórar, dýralæknar og sjúkdómadeild rannsóknarstofu atvinnuveganna.

Nefndin ætlast til, að svo fljótt sem auðið verður falli úr gildi eldri lagaákvæði um ýmsa hættulega búfjársjúkdóma, svo sem kláða, mæðiveiki, miltisbruna, garnaveiki og berklaveiki í kúm, en að í stað þessara ákvæða komi reglugerðir um meðferð þessara sjúkdóma og varnir gegn þeim.

Ég læt þessi orð nægja til þess að fylgja frv. úr hlaði, en óska eftir því, að því verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og landbn.