19.03.1940
Neðri deild: 21. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 111 í C-deild Alþingistíðinda. (2126)

53. mál, eyðing svartbaks

Steingrímur Steinþórsson:

Ég er einn af þeim, sem voru óánægðir með þá breyt. allshn. að varpa öllum kostnaðinum á ríkið. Eins og hv. þm. Borgf. sagði, finnst mér ekki ná neinni átt annað en einhver skattur sé lagður á varpeigendur. Því get ég ekki verið á sama máli og hv. frsm., að það sé eðlilegt að geyma þessi atriði til 3. umr. Ég er fyrir mitt leyti algerlega móti frv., ef allur kostnaður á að greiðast úr ríkissjóði, og ef svo kynni að vera um fleiri, getur oltið á afgreiðslu þessa atriðis, hvort frv. fer til 3. umr. eða nær hér fullnaðarsamþykkt. (BJ: Vitanlega!). Já, þess vegna fylgi ég brtt. hv. þm. V.-Sk. og frv., ef 2. gr. helzt eins og hann leggur til. Mér finnst það óþarfa stífni af hv. allshn., ef hún gerir þetta að því kappsmáli, að það hnekki málinu, enda hélt ég, að samkomulagið innan hennar hefði fyrst og fremst verið byggt á því að nema hrafninn burt úr frv. Hefði brtt. hv. þm. V.- Sk. ekki komið fram, mundi ég alls ekki hafa tekið þátt í atkvgr. um málið við þessa umr.