28.03.1940
Neðri deild: 24. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 144 í C-deild Alþingistíðinda. (2222)
91. mál, fjarskipti
*Frsm. (Gísli Sveinsson):
Herra forseti! Samgmn. hefir að tilhlutun ríkisstj. borið fram þetta frv., og er n. að sjálfsögðu allskostar óbundin um einstök atriði málsins. Þetta mál er flutt hér nú, enda þótt ekki séu líkur til, að það nái fram að ganga á þessu þingi.
Ég hefi einnig umboð til að lýsa því yfir f. h. ríkisstj., eða þess ráðh., sem þessi mál heyra undir, að póst- og símamálastjórinn hafi farið fram á það, að þetta mál kæmi fram, og að ríkisstj. hafi viljað verða við þeim tilmælum, en að hún telji sig ekki bundna við einstök ákvæði.
Ég skal geta þess, að í frv. eru ýms atriði. sem má telja víst, að menn greini á um, einkum í sambandi við 2. og 3. gr. Ég vil því vænta þess, að frv. verði athugað vel, bæði af hv. d. og eins af n. Ég vil svo að lokum leggja til, að frv. verði vísað til 2. umr.