19.04.1940
Neðri deild: 45. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 163 í C-deild Alþingistíðinda. (2257)
105. mál, verðlagsuppbót á laun starfsmanna í verzlunum og skrifstofum o. fl.
*Frsm. (Sveinbjörn Högnason):
Herra forseti! Ég hefði viljað mælast til þess, að frv. væri tekið út af dagskrá, því að fjhn. myndi vilja bera fram brtt. við það, eftir að sýnt er um afgreiðslu frv. um greiðslu verðlagsuppbótar á laun embættismanna og opinberra starfsmanna, og teldi ég rétt, að fjhn. gæfist einhver tími til þess að ganga frá þeim brtt.