23.04.1940
Efri deild: 49. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 179 í C-deild Alþingistíðinda. (2288)

105. mál, verðlagsuppbót á laun starfsmanna í verzlunum og skrifstofum o. fl.

Páll Zóphóníasson:

Út af þeim ummælum, sem hafa fallið hér nú, þá skal ég minna á atvik, sem kom fyrir á síðasta þingi við atkvgr. um fjárl. Þá báru framsóknarmenn fram brtt. við till. um heimild fyrir ábyrgð handa Ólafsfjarðarkauptúni, en þeir þm., sem nú standa að þessu frv., neituðu um afbrigði, til þess að knýja málið fram óbreytt eins og þeir vildu hafa það. Ég mun neyta sömu aðstöðu nú og neita um afbrigði, og taka mér þá menn þar til fyrirmyndar, er nú standa hér fastast að þessu frv., enda þó ég ella vilji líkjast þeim um sem allra fæst.