27.02.1940
Sameinað þing: 3. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 41 í B-deild Alþingistíðinda. (23)
1. mál, fjárlög 1941
Haraldur Guðmundsson:
Síðasti ræðumaður, hv. 1. landsk., Brynj. Bjarnason, fulltrúi komnúnista, lauk ræðu sinni með því að segja, að það, sem gera þyrfti, væri að víkja frá völdum þeirri stjórn, sem nú er við völd, og mynda stjórn, sent þjóðin gæti treyst. Og það var svo sem auðheyrt á ræðu hans, hvaða stjórn þjóðin ætti að geta treyst. Það væri stjórn, mynduð af þeim þremenningunum hér í þinginu, honum og sálufélögum hans.
Þessi ummæli eru ekki verð annara svara en þeirra, að vitanlega yrði slíkri stjórn ekki til annars treystandi en svipaðra aðgerða og skoðanabræður hans í öðrum löndum eru nú að leitast við að koma þar fram. Slík stjórn myndi njóta svipaðs trausts hjá ísi. þjóðinni og stjórn Kuusinens nýtur hjá finnsku þjóðinni.
Þá fullyrðir hv. þm., að lög hafi verið brotin með því að hafa ekki útvarpsumræður á seinni hluta síðasta þings, þ.e. eldhúsumræður. Slík fullyrðing er ekki svaraverð. Í því efni var fylgt þingsköpum út í yztu æsar.
Ég tók eftir því. að hv. þm. A.-Sk., Jón Ívarsson, lét í ræðu sinni orð falla um það, að þeir undarlegu atburðir hefðu gerzt hér hjá okkur, að „feitu kýrnar“, eins og hann orðaði það. hefðu lagt sér til munns „mögru kýrnar“. vildi hann þar með halda fram, að „góðærin“, sem hann kallaði,1934–1938, hefðu etið upp „afganga harðæranna“ 1932–1933. Ég vil ekkert fullyrða um, hvernig árferðið hefir verið í kjördæmi þessa hv. þm. árin 1934–1938. En hitt veit ég, að á þeim árum dundi yfir okkur markaðslokun á Spáni, alheimskreppa í viðskiptum, stórkostleg mæðiveiki í sauðfé og óminnilegt aflaleysi. Þetta er í augum þessa hv. þm. „góðæri“. Árin 1932–1933 voru vissulega um margt erfið ár, en þó var fiskafli þessi ár um heimingi meiri en árin 1935–1938, að meðaltali hvert ár.
Þar sem ummæli hv. þm. um, að þessi „góðæri“ hefðu etið upp „afgang harðæranna“ 1932 –1933 láta mér undarlega í eyrum, fékk ég hjá hæstv. viðskmrh., fyrrv. fjmrh., upplýsingar um, hvað tölurnar segja um þessi efni. Samkvæmt skýrslum Hagstofunnar er hækkun á skuldum þjóðarinnar við útlönd frá árslokum 1935 til ársloka 1938 talin 14.8 millj. kr. En þar af eru 51/2 millj. kr., sem liggja einungis í því, að betur er talið fram, fyllri upplýsingar fyrir hendi um skuldirnar við lok þessa tímablis en við upphaf þess. Skuldir þessar voru til 1934, en ótaldar þá. Skuldaaukning við útlönd á þessu tímabili er því ekki nema rúmlega 9 milljónir króna. Þar af er lánið til Sogsvirkjunarinnar eitt saman 7 millj. kr. Auk þess voru á þessu tímabili stækkaðar og byggðar síldarverksmiðjur fyrir milljónir króna, og hafa þær orðið bjargvættur fyrir þjóðina, þegar þorskaflinn brást. Rafveitur og fjöldi iðnfyrirtækja, sem kostuðu stórfé, voru og reist á þessum árum. Alls var lagt fram á þessum þremur árum, 1935–1937, til slíkra framkvæmda mun hærri upphæð en samtals á 10 næstu árum þar á undan.
Ég vil nú biðja hv. þm. að athuga í fyrsta lagi: Hvað voru feitu kýrnar feitar? Og í öðru lagi: Hvað voru mögru kýrnar magrar? Og í þriðja lagi: Hvað var „afgangur harðæranna“ mikill?
Árið 1933 var hagstæður verzlunarjöfnuður en 21/2 millj. kr. En greiðslujöfnuðurinn var óhagstæður, því þar eru ekki taldar duldar greiðslur, sem áreiðanlega hafa verið þrefalt hærri. Gengi dönsku krónunnar lækkaði á þessu tímabili og því skuldir við Danmörku taldar í ísl. krónum.
Skal ég svo víkja að fjárlagafrv. sjálfu og ræðu hæstv. fjmrh.
Ég skal játa, að það er ákaflega örðugt, að ég ekki segi ómögulegt, að semja nú á þessum tíma frv. til fjárlaga, sem gilda eigi fyrir árið 1941, og ég er þess fullviss, að hæstv. fjmrh. er þetta ljóst. Enda hygg ég, að okkur geti komið saman um það, að þetta frv. beri fremur að skoða sem frómar óskir og ábendingar heldur en að hæstv. ráðh. búist við, að hægt sé að líta á það sem trausta undirstöðu til að byggja á fjárhagsframkvæmdir á næsta ári. Einmitt þegar á þetta er litið, er það því undarlegra, hvernig undirbúningi fjárlagafrv-. hefir verið háttað að þessu sinni. Ég hefi það fyrir satt, og það er ekki ágizkun ein, að hæstv. fjmrh. hafi ekki ráðfært sig í ríkisstjórninni áður en hann gekk frá frv. Ég verð að harma, að svo hefir verið farið að, því að þegar þjóðstjórnin var mynduð, var það tilætlunin, að sem mest samvinna væri á milli ráðherra þeirra flokka, er að ríkisstjórninni standa, og að reynt væri á þann hátt að sneiða hjá árekstrum.
Áður en ég vík að sjálfu frv., vil ég með leyfi hæstv. forseta lesa hér upp örfá orð úr þeim ræðum, sem fluttar voru, þegar núverandi ríkisstjórn tók við völdum.
Í þessum ræðum og sérstaklega ræðu hæstv. forsrh., sem talaði fyrir hönd ríkisstjórnarinnar allrar, er það tekið fram, hvað stjórnin telur sín höfuðverkefni, og í hvaða skyni hefði verið til samvinnu stofnað.
Þá sagði hæstv. forsrh. m.a.: „Ríkisstjórnin telur, að meginviðfangsefni hennar verði fyrst og fremst:
1) Að efla framleiðslustarfsemina í landinu.
2) Að búa þjóðina undir að geta lifað sem mest af gæðum landsins og gera aðrar ráðstafanir þjóðinni til sjálfbjargar, ef til ófriðar kemur:
Þetta em 2 fyrstu atriðin. Síðan telur hæstv-. ráðh. tvö önnur meginatriði sem stefnumál stjórnarinnar.
„3) Að sameina lýðræðisöflin í landinu til verndar og eflingar lýðræðinu,“ og
„4) Að sameina þjóðina um þann undirbúning, sem gera þarf í sambandi við framtíðarákvarðanir í sjálfstæðismálinu.“
Þá segir hæstv. forsrh. síðar í ræðu sinni við þetta sama tækifæri:
„Ennfremur mun ríkisstjórnin vinna eftir megni að sparnaði og lækkun útgjalda, l eði hjá ríkinu og bæjarfélögum.
Í því sambandi tekur ríkisstjórnin þó fram, að hún telur, að ekki beri að draga úr verklegum framkvæmdum hins opinbera eða framlögum til atvinnubóta eins og atvinnuástandið er nú í landinu.“
Það er ljóst af þessum ummælum, að meginatriðið, sem lagt var til grundvallar við myndun þjóðstjórnarinnar, var, að öll orka væri í það lögð að halda uppi verklegum framkvæmdum í landinu og auka atvinnuna.
Vissulega var þessa þörf þá, en ekki er þess síður þörf nú, Ástandið er þannig, að það, sem þá var þörf, er nauðsyn nú í þessu efni.
Þá tók þessi hæstv. ráðh. einnig fram: „Ennfremur vill ríkisstj. vinna að aukningu og endurnýjun fiskiflotans með því að veita til þess fé á svipaðan hátt og verið hefir undanfarin tvö ár, eftir því, sem fjárhagur leyfir.“
Ég get ekki látið vera að minna á þetta atriði vegna þeirra sérstöku örðugleika, sem reynzt hafa á því að fá gjaldeyris- og innflutningsleyfi í sambandi við kaup á fiskibátum fyrir Reykvíkinga og jafnvel til fleiri staða á landinu. Ennfremur verð ég að minna á það, að á síðasta þingi var framlag til fiskimálanefndar lækkað um eða yfir 300 þús. kr. Hefði því mátt vænta þess, að ekkert yrði ógert látið til að greiða fyrir innflutningi þeirra báta, sem mögulegt yrði að kaupa. Ég vil vona að það lánist að greiða úr þessum erfiðleikum, og að Alþingi sjái sér fært að halda áfram að styðja aukningu fiskiflotans.
Þá mælti hæstv. félmrh., Stefán Jóh. Stefánsson, við sama tækifæri:
„Vegna hins mikla atvinnuleysis, sem ríkir í landinu, telur Alþýðuflokkurinn, að halda beri uppi opinberum verklegum framkvæmdum og atvinnubótum eins og verið hefir undanfarin ár, um leið og reynt er að láta opinberu framkvæmdirnar og atvinnubæturnar stuðla að aukinni framleiðslu í landinu.“
Í ræðu hæstv. atvmrh., Ólafs Thors, er ekki að þessu vikið á annan veg en þann. að hann sé þessu sammála. En til viðbótar þessu segir sá hæstv. ráðh. í ræðu sinni við þetta tækifæri, að Sjálfstfl. hafi tekið þá ákvörðun, að ganga til stjórnarsamvinnu, með því skilyrði m.a., að „ráðherrar hafi gagnkvæman rétt til að fylgjast með öllu, er gerist, hver í annars ráðuneyti, og skulu fjmrh. og viðskmrh. alveg sérstaklega hafa nána samvinu.“ Ég óttast eða illu heldur veit, að samvinna um undirbúning þessa fjárlfrv. hefir ekki verið eins og gert hefir verið ráð fyrir og æskilegt hefði verið með tilliti til þessara orða hæstv. atvmrh.
Ég minnist þess frá fyrri árum, án þess að ég vilji nú fara að rifja upp gamlar væringar. að mjög var talað um eyðslu og fjárbruðl fyrrv. ríkisstjórnar af andstæðingum hennar. Þeir fullyrtu þá, að auðvelt væri að lækka ríkisgjöldin um millj., ef þeir, en ekki Alþfl., og Framsfl., færu með stjórn þessara mála. Ég beið eftir tillögum sjálfstæðismanna í þessu efni á síðasta þingi, og þá ekki síður í frv. því til fjárlaga, sem fram er nú komið. Ekki ber því að neita, að frv. sýnir vilja í þessa átt, þó að ég þykist glöggt sjá á till. hv. ráðherra, að niðurskurðurinn hefir reynzt honum býsna örðugur. Á pappírnum lítur að vísu svo út, að ríkisútgjöldin eigi að verða um í millj. kr. lægri en þau eru ákveðin í fjárlögum yfirstandandi árs. En þess er að minnast, að þau fjárlög eru mun hærri en frv. var, sem lagt var fyrir þingið. Ég tel líka fullvíst, að eins færi um þetta frv., að óhjákvæmilegt verði að hækka ýmsa liði þess, ef þeir eiga að nálgast veruleikann. Ýmsir útgjaldaliðir frv. eru áreiðanlega vantaldir, þó ekki sé nema með tilliti til aukinnar og vaxandi dýrtíðar, sem hlýtur að valda hækkun á mörgum liðum öðrum en launum opinberra starfsmanna. Þá munu og nokkrir lögboðnir gjaldaliðir ótaldir í frv. Sú lækkun, sem hæstv-. fjmrh. í frv. telur, að verði á heildarútgjöldum og nema á um í millj. króna, er því meira en vafasöm. Ég óttast, að lækkunin sé fremur á pappírnum en í veruleikanum. í orði fremur en á borði. Segi ég þetta ekki til að ámæla hæstv. ráðh. Engum er ljósara en mér, hversu gífurlega erfitt er að skera niður ríkisútgjöld nú á þessum tímum, þegar flestar þjóðir verða að hækka fjárlög sín.
Ég bendi einnig á í sambandi við þetta, að einnig hinum skeleggustu flokksmönnum hæstv. ráðh. ætlar að verða heildarlækkunin býsna erfið. Hv. þm. A.- Húnv., Jón Pálmason, sem er alkunnur sparnaðarmaður, hefir lagt fram frv. þess efnis, að veittar verði úr ríkissjóði 2 millj. kr. til þess að bæta upp verð á kjöti og mjólk. Ef þetta frv. nær fram að ganga, yrði býsna lítið eftir af sparnaði hæstv. fjmrh.
Skal ég þá með örfáum orðum víkja að einstökum liðum, sem breytt hefir verið í fjárlfrv. þessu frá gildandi fjárlögum. Er þá fyrst að minnast á styrkinn til landbúnaðarins, sem er ætlazt til, að verði lækkaður um á milli 900 þús. og í millj. kr. Þar er stærsta breyt. tæplega 400 þús. kr., sem ætlazt er til, að jarðræktarstyrkurinn lækki um. Jarðræktarstyrkurinn er aðeins áætlaður í fjárlögunum, því í sérstökum lögum er ákveðið, hve mikið eigi að greiða í styrk fyrir hvert dagsverk eða styrkeiningu. Ég hefi ekki fengið neinar þær upplýsingar enn, er bendi til þess, að jarðræktarframkvæmdir minnki svo mikið á þessu ári, að skynsamlegt megi telja að lækka þennan styrk svona mikið. Ef þetta ákvæði á því að verða annað en augnagaman, væri nauðsynlegt að setja lög um það að takmarka jarðræktarstyrkinn við þessa upphæð.
Mér er það ljóst, að það er þýðingarlaust að tala um nokkurn verulegan niðurskurð á fjárl., án þess að það hljóti að ganga að verulegu leyti út yfir styrki til landbúnaðarins, vegna þess að þeir styrkir eru svo mikill hluti af fjárlagaútgjöldunum, ég ætla fullar 3 millj. kr. En mér virðast till. hæstv. fjmrh. um lækkun þessara styrkja gerðar mjög af handahófi. Styrkjakerfi landbúnaðarins hefir verið byggt upp með löggjöf á h. u. b. 15 árum og hygg ég því, að alveg ógerlegt sé að raska því verulega, án þess að ú undan hafi gengið gaumgæfileg rannsókn á þeim málum. Það getur verið sumpart eðlilegt að lækka nokkra þessara styrkja eitthvað, og sumpart getur öll nauðsyn gert það óhjákvæmilegt að draga eitthvað úr öðrum. En á þessu þarf sem sagt að fara fram ýtarleg rannsókn áður en hægt er að gera stórfelldar ráðstafanir. Líka getur sama nauðsyn verið til að auka við á öðrum sviðum. Ég tel t.d., að einmitt nú sé alveg sérstök nauðsyn til að auka vissa grein jarðræktunarstarfseminnar: á ég þar einkum við að þurrka og brjóta land til ræktunar kringum sjávarþorp og kaupstaði, þar sem þéttbýlast er og samgönguskilyrði góð.
Ennfremur verður að sjálfsögðu, eins og hæstv. ráðh. segir, óhjákvæmilegt að taka tillit til þess, hverjar framkvæmdir eru kröfufrekastar til innflutnings og erlends gjaldeyris og hverjar vera minnstar kröfur í þessum efnum.
Aðrar lækkanir samkvæmt frv. eru t.d. 150 þús. kr. lækkun á fjárveitingu til nýrra þjóðvega. Þetta er í beinu ósamræmi við yfirlýsingu samstjórnarinnar, sem hún gaf þegar hún var mynduð og ég las upp áðan, og auk þess óskynsamlegur sparnaður. Vegavinnan og framræsla lands eru þær framkvæmdir, sem minnst taka til sín af erlendum gjaldeyri og við því eigum hægast með að halda uppi, þó að gjaldeyriserfiðleikar aukist og flutningar til landsins torveldist vegna styrjaldarinnar. Helmingurinn af þessum 150 þús. kr. fyrirhugaða sparnaði á að koma niður á Suðurlandsbrautinni, sem á að tengja Reykjavík við Suðurlandsundirlendið og bráðlega veitir einum stærsta kaupstaði landsins, Hafnarfirði, greiðan aðgang að ræktunarlandi, auk þess sem Hafnfirðingum og Reykvíkingum er að þessu verki atvinnubót. Ég álít það því mjög misráðið að gera ráð fyrir lækkun fjárframlaga til vegalagninga, og þó sérstaklega þessarar.
Þá get ég heldur ekki fallizt á, að lækkað verði framlagið til verkamannabústaða, eins og hér er gert ráð fyrir í frv., um 130 þús. kr. Hér er að vísu fullkomlega ljóst, að erfitt er að halda uppi byggingarframkvæmdum eins og nú árar. Vil þó í lengstu lög vona, að ekki verði á því sviði fullkomin stöðvun. Og verði nokkuð hægt að byggja á að sjálfsögðu að láta þær byggingar sitja í fyrirrúmi, sem allra nauðsynlegastar eru. Og þá koma þessir bústaðir í fremstu röð. En jafnvel þó að svo færi, að ekki yrði hægt að byggja neitt af verkamannabústöðunum á næsta ári vegna styrjaldarinnar, þá er óhyggilegt að fella þennan styrk alveg niður eða lækka. Það er alveg víst, að eftir stríðið verður húsnæðisekla og ástandið þannig, að óumflýjanlegt verður að bæta þar úr. Og mjög er óvíst, að þá verði auðvelt að hækka aftur framlög til byggingarsjóðanna til að bæta þeim upp tekjumissinn. Er því nauðsynlegt, þó ekki sé byggt, að byggingarsjóðurinn fái að halda þeim tekjum, sem ber að leggja fram af hálfu þess opinbera til verkamannabústaða, svo hægt yrði að grípa til fjárins, þegar úr raknar.
Með tilliti til ástandsins og framtíðarútlits, gerð ég að telja, að ógerlegt sé að lækka framlög til atvinnubóta og verklegra framkvæmda. Að vísu getur orðið óhjákvæmilegt að draga úr þeim framkvæmdum, sem gjaldeyrisfrekastar eru, en því verður jafnframt að auka hinar, sem minni innflutning heimta, til að bæta það upp, ot; jafnvel auka við.
Það veit enginn, hvernig árið 1941 verður. En ég get ekki neitað því, að útlitið er mjög skuggalegt. Byggingarvinna hlýtur að minnka stórkostlega. Og útlit er fyrir, að vinna við fiskverkun, t.d. saltfisk, verði stórmikið minni en verið hefir. Ef þessar tvær atvinnugreinar dragast svo mikið saman sem útlit er fyrir, þá fæ ég ekki séð, um hjá því verði komizt að auka fjárframlög til ákveðinna verklegra framkvæmda. sem minnstan gjaldeyri þurfa, eða auka það framlag, sem kaupstöðunum er ætlað í atvinnubótaskyni, eða jafnvel gera þetta hvorttveggja. Í sambandi við þetta er rétt að minna á, að vonandi tekst að ljúka við hitaveitu Reykjavíkur á þessu ári, en hún er nú stærsta atvinnubótin hér. Ég veit það vel, að til eru margir þeir menn, sem telja, að það fé, sem veitt er til atvinnubóta, sé eingöngu eyðslufé og því algerlega á glæ kastað. En ég er viss um, að þessir menn myndu skipta um skoðun, ef þeir hefðu farið hér um nágrenni Reykjavíkur og séð þá ræktun og þá vegi, sem gerðir hafa verið fyrir þetta fé, og ef þeir athuga göturnar, sem gerðar hafa verið fyrir atvinnubótafé, garðinn við Eiðið í vestmannaeyjum og yfirleitt öll þau mannvirki og umbætur í kaupstöðum landsins, sem framkvæmd hafa verið fyrir atvinnubótaféð, þá mundu þeir ekki lengur segja slíkt í alvöru. Auk þessa er þess að gæta, að vegna þessara fjárframlaga hafa þúsundir manna fengið atvinnu, sem hefir fleytt þeim yfir erfiðasta tíma ársins, þegar allar aðrar bjargir voru bannaðar, öll sund lokuð nema vonin um beinan framfærslustyrk.
Ég get svo látið máli mínu lokið að þessu sinni. Alþfl. mun að sjálfsögðu sýna afstöðu sína til þessa frv. í einstökum atriðum með því að flytja till. til breytinga og með atkvgr. um fjárlfrv. í heild og einstök atriði, þegar til þess kemur. En þau atriði, sem ég hefi nú gert að umtalsefni, eru mér og öðrum alþýðuflokksmönnum ríkust í huga.