19.04.1940
Neðri deild: 45. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 190 í C-deild Alþingistíðinda. (2317)
118. mál, skattgreiðslur útgerðarfyrirtækja
Bergur Jónsson:
Vegna þess, að hv. 6. þm. Reykv. talar venjulega eins og hann sé eini maðurinn, sem láti sér annt um hag útgerðarinnar og þekki hana, vil ég skora á hann, út af orðum hans til hv. 2. þm. Skagf., að leiða einhver minnstu rök að þeirri fullyrðingu sinni, að útgerðin hér á Íslandi hafi á engan hátt hagnazt af gengisbreytingunni hér í fyrra. Mér finnst lítið fara fyrir þekkingu hans á útgerðarmálum og framleiðslumálum þjóðarinnar, sem hann hefir þó manna mest breitt sig út yfir, ef hann ætlar að halda svona staðleysu að þingmönnum og brennimerkja alla þingmenn, sem vilja afnema útsvarsfrelsi útgerðarfélaganna, sem vantrúaða á útgerðina, og ætlar að byggja þessar staðleysur sínar á fullyrðingum, sem hann veit, að eru endemis vitleysa.