19.04.1940
Neðri deild: 45. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 193 í C-deild Alþingistíðinda. (2323)

118. mál, skattgreiðslur útgerðarfyrirtækja

*Einar Olgeirsson:

Þetta er með þeim skemmtilegustu afmælisveizlum, sem ég hefi lent í. Ég veit ekki betur en að rétt ár sé liðið síðan þeir tóku saman og að verið sé að halda upp á afmæli þjóðstjórnarinnar. Utan frá séð virðist þetta vera allra skemmtilegasta kærleiksheimili, en þegar maður kíkir á bak við tjöldin, kemur dálítið annað í ljós. Það virðist koma fram, hver er húsbóndi á þessu kærleiksheimili, þegar atvmrh. setur hnefann í borðið og segir, að enginn skattur verði lagður á stórútgerðarmenn.

Ég hefi heyrt orð hér, sem benda til þess, að þessir menn lifi ekki í nútíðinni. Það hefir verið talað um framsóknarpólitík og sjálfstæðispólitík og þeir hafa farið að skamma hvor annan fyrir þetta, en ég vil minna þá á, að þeir eru hér að tala um dauða menn. Það er ekkert til, sem heitir þetta. Það tilheyrir fornöldinni. Ég hélt, að þeir vissu, að þetta er nú ein samsuða. Það er ekkert til, sem heitir framsóknarpólitík eða sjálfstæðispólitík, nú er aðeins ein samsuða til, og það er þjóðstjórnarpólitíkin. Ég vil biðja þessa menn að fara ekki að tala eins og afturgöngur. Það er leiðinlegt, þegar þeir hafa búið saman heilt ár í þessu hjónabandi, að þeir haldi því ekki áfram, af því að húsbóndinn sýni sig svo húsbóndalegan. Framsóknarmennirnir beygja sig áreiðanlega.

Svo langar mig að upplýsa þá um það, sem þeir hafa verið að rífast um: hvort gengisfallið hafi komið stórútgerðinni að gagni eða hvort það hafi orðið gagnslaust. Ég skal upplýsa, að það var út af þessu, sem sameiningin varð. Útgerðarmennirnir og stórgróðamennirnir sameinuðust embættismönnunum, Þeir sameinuðust um það, að láta fólkið borga, þegar þeir voru í þann veginn að sigla öllu í strand. Úr því varð þjóðstjórnin. Þess vegna rugluðu þeir saman reytum sínum, til þess að bjarga öllu, en svo þegar ekki ætlar allt að bjargast, fara þeir að rífast og kenna hvorir öðrum um. Það á að vera ýmist sjálfstæðismönnum eða framsóknarmönnum að kenna. Nei, þið eruð búnir að binda ykkar trúss allt of vel saman til þess að svona skrípaleikur dugi. Það er greinilegt, hverjir hafa grætt á þessu: Það eru togaraeigendurnir og þeir, sem lafa áfram í hálaunaembættunum. Hinsvegar veit ég það líka, hverjir það eru, sem tapa, — það er verkalýðurinn. En það er ekki verið að spyrja að því. Í augum þessara manna spilar það enga rullu.

Ég vildi bara upplýsa um þetta, af því þeir voru að rífast um það, en vil hinsvegar ekki trufla þennan skemmtilega afmælisfagnað á kærleiksheimilinu með því að hafa þessa ræðu lengri.