19.04.1940
Neðri deild: 45. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 194 í C-deild Alþingistíðinda. (2324)

118. mál, skattgreiðslur útgerðarfyrirtækja

Skúli Guðmundsson:

Það er búið að segja svo miklar fjarstæður í sambandi við mál þetta af hálfu ræðumanna Sjálfstfl., að það er erfitt að átta sig á því, hver þeirra er mest. En þó datt mér í hug, þegar hv. 4. þm. Reykv. (PHalld) talaði á eftir hv. 6. þm. Reykv. (SK), að það mætti segja um hann, að einn kæmi öðrum meiri.

Hv. 4. þm. Reykv. komst að þeirri niðurstöðu, .að gengislækkunin kæmi ekki útgerðarfyrirtækjunum til góða, en vék síðan að því, að fyrirtæki samvinnufélaganna væru skattfrjáls.

Ég hefi hér fyrir framan mig skrá um niðurjöfnun útsvara í Reykjavík árið 1939. á því herrans ári greiðir Samband ísl. samvinnufélaga 54000 kr. í útsvar, sem þessi hv. þm., sem jafnframt er borgarstjóri Reykjavíkurbæjar, fær til ráðstöfunar fyrir sitt bæjarfélag, og hefi ég ekki getað fundið í skránni neinn útsvarsgreiðanda annan, er greiði svo hátt útsvar. Hefi ég litið yfir nöfn þeirra fyrirtækja í útsvarsskránni, sem ég veit, að eru vel stæð, en þau eru öll talsvert lægri en S. Í. S. Svo leyfir þessi hv. þm. sér að halda því fram, að samvinnufélögin séu skattfrjáls! Á sama ári greiðir S. Í. S. tekjuog eignarskatt til ríkisins um það bil sömu upphæð og útsvarið til Reykjavíkurbæjar. Nú er það vitað, að S. Í. S. hefir lítil viðskipti hér í bæ, en þessi mikli skattur, hæsta útsvar, sem greitt er í Reykjavík, er fé, sem samvinnumenn víðsvegar um land leggja bænum til einungis vegna þess. að þeir hafa skrifstofu hér.

Það mætti nefna fleiri dæmi. Ég man nú ekki, hve mikið Kaupfélag Eyfirðinga á Akureyri greiðir í útsvar til Akureyrarbæjar, en það er hæsti útsvarsgreiðandinn þar. — Ég hefi ekki heyrt öllu meiri fjarstæðu en þá, að samvinnufélögin séu skattfrjáls.