11.04.1940
Efri deild: 32. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 211 í C-deild Alþingistíðinda. (2361)

52. mál, skatt- og útsvarsgreiðsla af stríðsáhættuþóknun

Páll Zóphóníasson:

Herra forseti! Ég þarf nú ekki mikið að segja. Ég sé á ræðu hv. 2. landsk., að taugastríðið er komið hér inn í deildina og í hann. Hann var að tala um presta. Ég hafði ekkert minnzt á presta. (SÁÓ: Ekki ég heldur). Hann hefir bara ekkert heyrt af því, sem ég var að segja. Ég hélt því fram, að ég væri á móti því, að nokkurri stétt væru veitt sérréttindi á kostnað annara stétta. Það má tala um, að einn og annar hafi sérréttindi, en það eitt eru sérréttindi, þegar Alþingi er að vernda eina stétt umfram aðrar, og það álít ég, að Alþingi geti ekki gert. Ég álít, að Alþingi geti ekki tekið ákvörðun um það, að ein stétt eigi að hagnast á annara kostnað. Það má náttúrlega segja, að þetta sé greiðsla fyrir áhættu og taugastríð þessa fólks, en eigum við að láta tilfinningarnar hlaupa svo með okkur í gönur, að við förum að skapa sérréttindi stétta, sem hafa svoleiðis taugar, að menn komast í taugatitring sitjandi inni í stól? En þeim, sem vilja láta tangaáreynsluna ráða um kaupgjald, vil ég segja það, að það er mismunandi áhætta við hverskonar störf. Og ef við eigum að fara að borga einhvern hluta launanna fyrir áhættu, verðum við að ákveða, hve mikill hluti er fyrir áhættuna. Ég vil spyrja: Hve mikill hluti af venjulegu sjómannskaupi er fyrir þá áhættu, sem sjómaðurinn skapar sér við að fara á sjó? Hve mikið á hann að fá fyrir þessa áhættu? Hve mikið? Ef við viljum vera sjálfum okkur samkvæmir, hljótum við að láta áhættuþóknun, hvort sem hún er til þessa eða hins, vera undanþegna skatti. Ég vona, að hv. ræðumaður geri upp við sig, hve mikill hluti af venjulegu sjómannskaupi er áhættuþókun, og svo geri ég ráð fyrir, að hann komi með frv. um að undanþiggja þessa áhættuþóknun skatti. Hvað á að segja um lækna hér á landi? Það er erfitt að fá lækna í héruðin úti á landi, bæði vegna þess, hve starfið er erfitt, og vegna þess, hve mikil lífshætta fylgir því. Hvað eigum við að ákveða, að mikill hluti af tekjum þessara lækna sé undanþeginn skatti?

Ég sé, að hv. n. hefir vitkazt svo, að hún hefir séð, hve tillagan var mikill óskapnaður, og hefir lagað hana, og vona ég, að hún vitkist svo, að hún taki till. aftur.