26.03.1940
Efri deild: 21. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 225 í C-deild Alþingistíðinda. (2381)

78. mál, kynsjúkdómar

*Flm (Jónas Jónsson):

Ég hefi flutt þetta frv. samkv. ósk dómsmrh., en hann aftur tekið við því af lögreglustjóra, sem samið hefir frv. Ég gerði við það nokkrar aths., sem fylgja grg., til þess að skýra það fyrir hæstv. Alþ. Ég sé ekki ástæðu til þess að bæta miklu við að svo stöddu, með því að mönnum er nokkuð kunnugt þetta mál. Þó vil ég segja það, að hinn nýi lögreglustjóri hefir gert sér sérstakt far um að rannsaka þessa hættu og hefir komizt að raun um það, að talsvert er algengt, að fólk sé hér við höfnina og í skipum, undir þeim kringumstæðum, að það er ekki auðvelt að búast við öðru en að kynning þessara manneskja við erlenda sjómenn geti haft sjúkdómshættu í för með sér.

Ég hygg, að svo þurfi ekki að ræða þetta nánar. Ef þingið vill leyfa lögreglustjóra það, sem hann fer fram á, þá samþ. það frv., en ef menn vilja gjarnan halda þessu ástandi við, þá verður frv. náttúrlega fellt. — Ég vildi svo óska eftir því að lokinni þessari umr., að frv. verði vísað til hv. allshn. og að hún afgr. það svo fljótt sem unnt er, og að frv. verði annaðhvort drepið strax eða sent áleiðis.