27.03.1940
Efri deild: 22. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 225 í C-deild Alþingistíðinda. (2384)
82. mál, skipulagssjóður
*Frsm. (Sigurjón Á. Ólafsson):
Frv. þetta er flutt af allshn. þessarar d. eftir beiðni hæstv. félmrh. Frv. fylgir ýtarleg grg., og er því óþarfi að fara út í efni frv., þar sem ég líka geri ráð fyrir, að hæstv. ráðh. ræði það nokkru nánar. Hinsvegar þykir mér hlýða að geta þess, að n. hefir ekki farið svo í gegnum frv., að hún hafi ákveðið að gera ekki breyt. við það. Ég býst við, að áður en málið fer úr d., hafi n. gefizt tími til að fara í gegnum það og gera brtt. við það, ef ástæða þykir til.