27.03.1940
Efri deild: 22. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 226 í C-deild Alþingistíðinda. (2386)

82. mál, skipulagssjóður

*Jóhann Jósefsson:

Herra forseti! Ég vil á þessu stigi málsins láta í ljós þá skoðun mína, að þótt til sanns vegar megi færa, að það sé nauðsynjamál að safna fé í skipulagssjóð, þá er hér vegur fundinn til að þrengja enn að kosti þeirra manna í kaupstöðum og þorpum, sem eiga fasteignir, og þá um leið venjulega þeirra manna, sem hafa atvinnurekstur með höndum, því að það fylgist í allflestum tilfellum að. Eins og kunnugt er, eru margar götur, sem liggja til Róm hér á landi að því er það snertir að taka gjöld í allsherjarsjóð landsins og til ýmislegra þarfa af eigendum fasteigna. Má þar minna á fasteignagjald til ríkisins, sem ég held, að sé ennþá við lýði, og fyrir skömmu var lögleitt fasteignagjald á húseignir í kaupstöðum, svo að það eru a. m. k. þessir tveir skattar fyrir utan hina almennu útsvarsálagningu, sem líka er framkvæmd með tilliti til, hvaða fasteignir eru í eigu gjaldenda. Og svo er hér, þótt í heimildarformi sé, stigið spor í áttina til að bæta enn á byrðar fasteignaeigenda, og eins og ég sagði áðan í flestum tilfellum atvinnurekenda, með því að heimila kaupstöðum með samþykki stj. að efna til nýrra álaga í því skyni að ná fé í skipulagssjóð.

Mér virðist, að fram verði að koma, nm leið og talað er fyrir nauðsyn skipulagningar og nauðsynjarinnar til að fá fé til þeirra hluta, líka það sjónarmið, sem ég hefi nú talað fyrir, sem sé það, að varlega beri að fara í því að þyngja sífellt gjöld á fasteignum, því að þótt í sumum tilfellum gefi fasteignir allmikla peninga af sér, t. d. leiguhús á fjölbyggðum stöðum eins og hér í Reykjavík, þá er það þó í ótal mörgum tilfellum, að menn, sem reka atvinnu, og þá einkum til sjávar, eða þeir hafa gert það, að þeir hafa yfir miklum húseignum að ráða, sem ekki svara alltaf miklum peningum handa þeim, sem skrifaður er fyrir þeim. Það fer eftir árferði, hversu mikið er hægt að reikna sér sem leigutekjur af allra handa húsum, sem fylgja atvinnurekstrinum við sjóinn, en ég hugsa, að ég fari ekki mikið villur vegar, þegar ég get mér þess til, að þessum skatti muni fyrst og fremst vera beint gegn byggingum í kauptúnum og kaupstöðum, þar sem vega- og hafnarbætur hafa verið gerðar og standa þess vegna í sambandi við atvinnurekstur við sjóinn.

Ég ætla ekki að fara hér um fleiri orðum, en vil beina því til þeirrar n., sem kemur til með að fjalla um þetta mál, að það er komið meira en mál til að athuga með svona húseignir, sem oft eru arðlitlar, undir hve háu gjaldi þær geta staðið, því að það fer svo með allar opinberar álögur, hvort sem þær eru á húseignir eða atvinnurekstur, að það eru takmörk fyrir, hversu lengi er hægt að hækka þær álögur og þá skatta, sem þessum gjaldendum er gert að greiða. Ég held, að það hafi verið fyrir austan, að það skeði fyrir nokkrum árum, að fasteignaeigandi varð að offra undir hamarinn eign til þess að geta staðið undir opinberum gjöldum.

Þetta eru þau orð, sem ég vil láta fylgja þessu máli til n., að það sé yfir höfuð kominn tími til að sporna við þeim síhækkandi skattaálögum, sem alltaf eiga sér stað, þó að það beinlínis eigi ekki heima um þetta frv. Þær byrðar, sem sí og æ er verið að leggja á atvinnureksturinn, fara að eiga stóran þátt í því aukna atvinnuleysi, sem við horfum nú upp á daglega.