27.03.1940
Efri deild: 22. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 230 í C-deild Alþingistíðinda. (2397)

89. mál, sjómannalög

*Frsm. (Jóhann Jósefsson):

Ég vil geta þess út af ummælum Im. 2. landsk., að í sjálfu sér væri réttara að kalla frv. þetta „frv. til l. um viðauka við sjómannal.“, í stað þess að það heitir nú „frv. til l. um breyt. á sjómannal.“, því að í rauninni breytir það engu um aðstöðu þeirra manna í heild, er l. fjalla um, að því er snertir ráðningarkjör eða annað slíkt. Ég veit ekki, hvað hv. þm. hefir í huga, er hann talar um brytingar á sjómannal. að öðru leyti, en þetta frv. fer ekki fram á, að dreginn sé fram réttur loftskeytamanna á kostnað annara manna.

Ég vona, að málið fái greiðan gang gegnum hv. Alþ. Það er lagt fram af sjútvn., en það, hvort sú n. á að fjalla um það héðan af, læt ég ósagt og geri það ekki að ágreiningsefni, en eðlilegast er, að svona mál fari til þeirrar n. (SÁÓ: Þetta er, samkv. venju, allshn.- mál). Hv. 2. landsk. skaut því inn í, að samkv. venju ætti þetta að vera allshn.-mál. Ég man það ekki vel, en dreg í efa, að svo sé, og vil gera það að till. minni, að því verði vísað til sjútvn. (SÁÓ: Mér varð mismæli, ég meinti sjútvn.).