12.03.1940
Sameinað þing: 5. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 8 í D-deild Alþingistíðinda. (2430)
15. mál, hitun og lýsing háskólans
*Héðinn Valdimarsson:
Ég þarf nú lítið að skýra þessa till., ég veik að henni áður. Með henni er ekki átt við annað en það, að ríkisstj. sé ekki sagt að hætta að tala við bæjarstj., ef hún vill ekki láta ókeypis hitun og ljós til háskólans.
Því, sem hv. þm. S.-Þ. sagði í minn garð, ætla ég aðeins að svara örfáum orðum. Hann vill ekki taka eftir Dönum nema þegar það á við, en ég hygg nú samt, að honum sé ekki svo kunnugt um fjárhag Árósabæjar, að hann geti gert þennan samanburð. Það er vitanlegt, að það var háskóli í Danmörku áður en háskólinn í Árósum var byggður, og hver sem fjárframlögin hafa verið af hálfu Árósabæjar, er hitt víst, að Reykjavíkurbær hefir lagt fram mikið fjármagn með því mikla landi, sem hann lagði til. Þeir, sem hafa staðið að byggingu þessa háskóla, eins og hv. þm. S.Þ. og sá arkitekt, sem hann heldur mest af, hafa gert hann allt of stóran og dýran, og einkennilegt er það, að þegar búið er að byggja þessar allt of stóru byggingar, sem eru of stórar til þess að hægt sé að reka þær, á að koma því á einhvern annan. Það var eytt 100 þús. krónum í það eitt að grafa skál fyrir framan háskólann til þess að opna betri útsjón. Það er bersýnilegt, að hægt var að koma þessu upp fyrir þetta fé, sem almenningur í landinu hefir lagt fram til háskólabyggingarinnar.
Ég ætla svo að minnast stuttlega á fyrirkomulag háskólans, sem ekki mun vera notað erlendis, að byggja eina stóra byggingu fyrir margar aldir, í stað þess að byggja mörg smáhús.
Í sambandi við það, sem fjmrh. gat um með hitaveituna og Sogsrafmagnið, vil ég geta þess, að mér er kunnugt um, að ekki muni vera lengur en fram á næsta vetur sem rafmagnsþörf bæjarbúa er fullnægt með því rafmagni, sem til er, og verður að taka til athugunar, hvort hægt muni vera að ráðast í að bæta við stöðina á þeim sparnaðartímum, sem nú eru. Um hitaveituna held ég, að útreikningar séu svo, að ekki sé víst, að mikill afgangur sé, og hygg ég réttara að taka til athugunar, hvort heppilegt sé að halda áfram rekstri háskólans. Þetta eru hvorttveggja fyrirtæki bæjarins, sem hann þarf að nota.
Vil ég svo mæla með því, að þessi brtt. verði samþ., svo þetta sé hlutlaust af þingsins hálfu, og að sjálfsögðu reynir ríkisstj. að komast að sem beztum kjörum, ef tiltækilegt þykir að reka háskólann í hinu nýja húsi.