10.04.1940
Sameinað þing: 17. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 58 í D-deild Alþingistíðinda. (2469)

114. mál, æðsta vald í málefnum ríkisins

*Forseti (HG):

Eftir að hæstv. ríkisstj. hefir skýrt svo frá, að hún telji nauðsyn bera til þess, að afgreiðsla þeirra mála, sem hér eru á dagskrá, fari fram þegar á þessari nóttu, þá skal ég, að því er snertir þau ummæli hv. þm., er féllu á þá leið, að hann teldi, að hér væru farnar aðrar leiðir en fyrir væri mælt, taka það fram, að þar sem ástandið nú er þannig, að konungur getur ekki gegnt störfum sem þjóðhöfðingi Íslands, og því verður að teljast óhjákvæmilegt, að Alþingi ákveði skipun þeirra mála, tel ég, að till. beri að taka til meðferðar og afgreiðslu á Alþingi nú þegar.