03.04.1940
Sameinað þing: 12. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 68 í D-deild Alþingistíðinda. (2510)
93. mál, innflutningur á byggingarefni o. fl.
*Flm. (Magnús Jónsson):
Ég skal, af því hvernig störfum og tíma þingsins er nú komið, stytta mál mitt eftir fremsta megni um þá þáltill., sem við þm. Reykv. höfum borið hér fram um innflutning á byggingarefni o. fl.
Það hefir nú verið tekin upp, og ég vil segja hvað eftir annað og stundum í nokkuð stórum stíl, sú regla, að hlaupa undir bagga með sérstökum stéttum manna, sem hafa orðið fyrir einhverjum sérstaklega þungum búsifjum af ýmsum óhjákvæmilegum atvikum. Vil ég í því sambandi benda t. d. á þær ráðstafanir, sem gerðar hafa verið til viðréttingar þeim sveitum, sem hafa orðið fyrir þyngstum búsifjum af völdum sauðfjárpestarinnar. Að vísu er mikið af þeim ráðstöfunum gert til þess að varna því, að pestin breiðist út. En það hefir líka af hálfu löggjafarvaldsins verið gert mikið til þess að reyna að bæta mönnum einhvern veginn upp það fjárhagslega tjóa, sem þeir hafa orðið fyrir af þessum orsökum, til þess að firra þessar stéttir hreint og beint vandræðum af þessum völdum, sem menn geta ekki við ráðið. Og það er í raun og veru alveg eðlilegt, að slíkt sé gert, ekki sízt eins og nú er komið stjórnarháttum í okkar þjóðfélagi, þar sem ríkið dregur til sín svo afarmikið yfirleitt af tekjum manna og hefir orðið svo margvísleg afskipti af högum manna. Það er því alveg eðlilegt, að einstaklingar og ekki síður stéttir manna leiti til löggjafarvaldsins um nokkurn stuðning, ef nokkuð ber að höndum, sem gerir það að verkum, að fjöldi manna, já, heilar stéttir, kemst í mikil þrot og vandræði.
Sú stétt manna, sem nú leitar hjálpar þingsins, eru faglærðir byggingamenn hér í Reykjavík. Hér í Reykjavík hefir verið byggt mikið á mörgum undanförnum árum. Ég hefi séð skýrslu, sem ekki er ástæða til að rengja, um það, að hér í Reykjavík sé nokkuð á 4. millj. kr. og upp yfir 7 millj. kr. verð þeirra húsa, sem reist hafa verið á ári á því árabili, sem ég hefi hér skýrslu um, sem jafnar sig upp með að vera um það bil 5.2 millj. á ári, sem hús hafa verið reist fyrir. Ég skal alls ekki fara út í það neitt hér að minnast á það, hvort þessar byggingar hafi verið nauðsynlegar eða hæfilega miklar út af fyrir sig, og þá ekki heldur ræða neitt um það, hvernig byggt hefir verið. Það spursmál er í sjálfu sér þessu alveg óviðkomandi. En það hlýtur að vera öllum augljóst, að svona stórfelld starfsemi hlýtur að draga að sér mjög mikinn vinnukraft. Og ef á að fara svo að segja í einni svipan að taka fyrir svona viðtæka og mikla starfsemi, þá hljóta að steðja afarmikil vandræði að þeim mönnum, sem hafa unnið að byggingum, án þess að þeir hafi nokkuð þar til unnið. Ég býst við því að enginn maður mundi láta sér detta í hug, að öll ábyrgðin af of miklum byggingum, hvort heldur er í Reykjavík eða annarstaðar, skuli hvíla á herðum þeirra manna„ sem að þessum störfum vinna. Þeirra vilji hlýtur eðlilega að vera sá, að mikil atvinna sé fyrir þá. Og þegar ráðizt er í mikið, þá dragast menn að þessari vinnu, eins og á sér stað um annað, sem býðst. En nú hefir fyrir atvikanna rás svo að segja tekið fyrir þessar byggingar, og það mun láta nærri, eftir því, sem upp hefir verið gefið, og ég hefi enga ástæðu til að vefengja það, að það muni vera eins og segir í grg. þessarar þáltill., eitthvað um 900 faglærðir menn í byggingariðnaðinum hér í Reykjavík. Þessir menn hafa á framfæri sínu eitthvað um 4000 manns, og það má nærri geta, að í ekki stærri bæ en Reykjavík er verði það ákaflega tilfinnanlegt, þegar tekið er að mjög miklu leyti fyrir atvinnu þessara manna, sem eru svo margir og hafa svo marga á framfæri sínu og hafa orðið að kosta mjög miklu til þess að komast í stöðu þá, sem þeir eru í, því að faglærðir iðnaðarmenn verða að verja mörgum árum af sinni æfi til þess að geta fengið þau bréf og skírteini, sem krafizt er til þess að þeir geti talizt hér faglærðir menn. Og þeir verða að vinna fyrir lágt eða sama sem ekkert kaup í 7 ár til þess að teljast faglærðir iðnaðarmenn.
Það, sem kippt hefir fyrst úr byggingum hér, eru beinlínis opinberar ráðstafanir sem gerðar hafa verið með tilliti til gjaldeyriserfiðleka í landinu. Og það mun hafa verið í júlí síðastl., þegar fyrst var tekið til að takmarka innflutning byggingarefnis til nýbygginga, áður en nokkur meiri ástæða var til heldur en verið hafði um langt skeið að ætla, að ófriður mundi koma til sögunnar. Og að tekið var fyrir innflutning á byggingarefni til nýbygginga, varð orsök stórkostlegra afleiðinga í þessum iðnaði. Ofan á þetta bættist svo ófriðarástandið með því geysilega verðiagi, sem verður á öllum vörum til bygginga af völdum þess, ásamt beinum örðugleikum á að fá það, sem þarf til bygginga, öðrum en verðhækkuninni. Og þar með er málið komið að þessu leyti úr höndum okkar, sem á venjulegum tímum einhverju getum ráðið um þessi mál, og út fyrir landsteinana, gersamlega undan öllu því, sem við getum gert ráðstafanir til að hafa áhrif á til að bæta úr beinlínis. Ófriðarástandið er óhjákvæmileg orsök verðhækkunar og annara slíkra örðugleika, þannig að það má alveg sjá það fyrir, að hvað sem nú annars er gert í þessum málum, þá hlýtur af orsökum ófriðarins að draga úr og nálega taka fyrir byggingar.
Þetta er þá það ástand hér í bænum, og ég býst við líka víðar á landinu, sem liggur til grundvallar þeirri þáltill., sem hér er borin fram á þskj. 216. Hér er stétt, sem löggjafarvaldið áreiðanlega verður að líta til, og það náttúrlega ekki síður fyrir það, að beinlínis opinberar ráðstafanir hafa átt sinn verulega þátt í þeim örðugleikum, sem þessi stétt er nú komin í. Og án þess að ég ætli að fara að gefa mönnum nokkurn vitnisburð um framferði í þjóðfélaginu, þá held ég, að maður geti sagt, að þessir iðnaðarmenn hafi ekki kvartað vonum fyrr, þótt þeir nú komi til þingsins og óski, að það liðsinni þeim nokkuð í þessu efni. Ef svo er litið á það, hvað farið er fram á í þessari þáltill., þá sjá menn, að þar er hvorki farið fram á beinan eða óbeinan styrk til þessara stétta. Það er t. d. ekki farið fram á það. að ráðizt sé í einhverjar stórkostlegar opinberar framkvæmdir á þessu sviði. Það hefir þó verið gert að nokkru leyti, t. d. fyrir þá bændur, sem hafa orðið fyrir þyngstum búsifjum af völdum mæðiveikinnar; og það hefir verið hyllzt til þess að hafa nokkuð miklar opinberar framkvæmdir á mæðiveikisvæðunum, til þess að vinna við þær gæti að einhverju leyti létt undir með þeim mönnum, sem hafa orðið harðast úti og misst bústofn sinn.
Það hefir verið farið fram á það til handa þeim, sem hafa haft atvinnu við saltfisksveiðar, að skip yrðu gerð út til að veita þessum mönnum atvinnu, þó að fyrirsjáanlegt tap yrði af þeirri útgerð. Það má alltaf hlusta á slíkar raddir. En í þessari till. er ekki farið fram á neitt slíkt, heldur eingöngu það, að hið opinbera leitist ekki við að bæta með sínum aðgerðum ofan á þau vandræði, sem það almenna ástand skapar.
Um það er getið í grg., að það komi niður á fleirum en þeim faglærðu mönnum, hvað mikið hefir dregið úr byggingariðnaðinum í Reykjavík. Í sambandi við byggingarnar er margskonar vinna fyrir ýmsa aðra, t. d. bifreiðarstjóra og bifreiðaeigendur við margskonar flutninga vegna bygginganna, og ýmiskonar aðra aðstoð, sem ekki þarf faglærða menn til, fyrir nú utan sjálfa byggingarverkamennina. Þessir menn verða því fyrir stórkostlegum atvinnumissi, en þeim er það að miklu leyti bætt upp með því mikla verkefni, sem nú stendur yfir í sambandi við hitaveituna. Þar skapast a. m. k. í svipinn veruleg atvinna, sem léttir undir með ófaglærðum mönnum.
Ég held, að ég kæri mig svo ekki að fara um þetta fleiri orðum að svo komnu máli. Málið er í raun og veru ákaflega ljóst. Það, sem farið er fram á, er í þremur liðum. Fyrst er það, að ekki verði gerðar ráðstafanir til þess að hindra það, að menn reisi ný hús í Reykjavík. Það er auðvitað, að hér er ekki farið fram á neinn háska, því að svo miklir örðugleikar eru nú á því að fá byggingarefni, að það er út úr hugum allra að láta sér detta í hug að reisa ný hús. Ég þekki þetta betur af því, að ég hefi verið viðriðinn byggingu á einu stóru húsi, sem nú er verið að reisa, en það er háskólabyggingin. Það er nú svo orðið með verðlag á öllu, að maður næstum því kvíðir hverjum degi, að eitthvað kunni að þjóta svo upp úr öllu valdi, að gefast verði upp, þó að húsið sé nú í burðarliðnum. Slíkt ástand hlýtur náttúrlega að koma í veg fyrir, að menn geti reist sér hús eins og nú er. En ef einhver skyldi vilja gera það. hvort sem það væri af því að hann væri peningamaður eða hann af einhverjum öðrum ástæðum vildi reisa nýtt hús, þá er farið fram á, að opinberar ráðstafanir verði ekki gerðar til þess að hindra það, sérstaklega vegna þess, að þessi stórkostlega hækkun á byggingarefni stafar í raun og veru ekki nema að nokkru leyti af hækkuðu verði, heldur að mjög verulegu leyti af hinum gífurlega flutningskostnaði, sem gæti verið, að eitthvað væri hægt að komast í kringum, þannig að það gæti orðið gjaldeyrinum að minni byrði. Þessi fyrsti liður er hálfgerður hégómi, því að hætt er við, að þetta yrði byggingariðnaðarmönnum að litlu liði, vegna þess hvað verð á byggingarefni er hátt.
Annar liðurinn er í raun og veru aðalefni till., en það eru þær ráðstafanir, sem iðnaðarmenn fara sérstaklega fram á, að verði gerðar, en það er, að innflutnings- og gjaldeyrishöftum verði þannig beitt, að jafnan gæti verið til hér á staðnum sem allra flest og helzt allt, sem þarf til þess að framkvæma aðgerðir á húsum. Þessi tegund atvinnu faglærðra manna er að því leyti hentugri en nýbyggingar, að þar fer hlutfallslega miklu minna til efniskaupa, en aftur meira í vinnulaun heldur en við nýbyggingar. Þá er einnig farið fram á, að þær verzlanir, sem verzla með þessi byggingarefni, fái að vera eins frjálsar með það og mögulegt er, því að þau ákaflega ströngu höft, sem eru í sambandi við sement og timbur, næstum hindra verzlun innanlands með þessi efni.
Þá er þriðji liðurinn. Það er vitanlegt, að þótt stjórnin greiði eftir því sem mögulegt er fyrir framgangi þessara tveggja fyrrnefndu liða, þá verður samt sem áður mikill hörgull á vinnu fyrir þessa byggingariðnaðarmenn. Því er farið fram á það í þriðja liðnum, að stj. í þeim framkvæmdum, sem hún lætur ráðast í, leitist við að nota þennan faglærða vinnukraft, eftir því sem hún telur fært.
Ég held, að hv. þm. hljóti bæði að viðurkenna þá þörf, sem hér er fyrir hendi, og eins, að hér er reynt að fara eins lipurlega og kurteislega í sakirnar í öllum kröfum og frekast er mögulegt.
Ég ætla ekki fyrirfram að gera ráð fyrir andstöðu gegn þessu máli, því að ég hygg, að stj. muni taka vel í svona hóflega fram bornar kröfur.
Af því að þetta mál liggur mjög ljóst fyrir og eins af því, að þótt það verði samþ., þá verður það að verulegu leyti í höndum stj., sé ég ekki ástæðu til, að það fari til n., einnig af því að miklir örðugleikar eru á að koma málum í gegnum n., og nú eru síðustu dagar þingsins. Ég legg því til, að málið fái afgreiðslu nefndarlaust, þótt ég geri það ekki að neinu aðalatriði.