23.04.1940
Sameinað þing: 23. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 86 í D-deild Alþingistíðinda. (2553)

80. mál, vegagerð milli Reykjavíkur og Suðurlandsundirlendisins

*Frsm. (Jörundur Brynjólfsson):

Allshn. hefir orðið ásátt um að leggja til, að till. verði samþ. með þeirri breyt., sem lagt er til á þskj. 565, og er það þá efni hennar að skora á ríkisstj. að leggja fyrir næsta Alþingi skýrslu og tillögur um framtíðarskipulag flutningaleiða milli Reykjavíkur og Suðurlandsláglendisins, og ennfremur skýrslur og tillögur um aðrar höfuðsamgönguleiðir jafnóðum og tími vinnst til. Nefndin átti tal um þetta við vegamálastjóra, og er breytingin gerð eftir það viðtal og er niðurstaða þess.

Eins og kunnugt er, hefir verið hreyft nokkrum leiðum milli Reykjavíkur og sveita austan fjalls og gerðar áætlanir um þær, svo sem um Krísuvíkurveg, leið yfir Þingvöll og niður með Sogi, Biskupstungnabraut, veg um Þrengslin, –en aldrei farið fram nægileg athugun á stytztu leiðinni, Hellisheiðarveginum, sem hlýtur líka að verða aðalleiðin yfir sumarið og alla þá stund, sem fært er að vetrinum. Það hefir verið ráðgert að breyta á köflum legu hans, til þess að meiri líkur væru til, að hann verðist snjóalögum. Enn hefir ekki fengizt yfirlit yfir þá möguleika, sízt ýtarlegt. Fyrir því vildi nefndin, að fram færi athugun á málinu, svo að á verulegum skýrslum og hlutlausri athugun væri að byggja. Jafnframt óskar n. eftir slíkum athugunum á ýmsum leiðum úti um land, eftir því sem vegamálastjóri hefir starfskrafta til að sinna þeim störfum. Vitaskuld er hér ekki til þess ætlazt, að aukinn verði kostnaður vegamálastjórnarinnar fyrir þessar sakir. En ekki skiptir slík athugun litlu. Ég skal taka fram, að í n. hefir kostnað af þessu ekki borið á góma, og skildi ég n. svo, að ekki þyrfti sérstaklega að gera ráð fyrir honum að svo komnu máli. Ég vil því vænta þess, að Alþingi geti fallizt á till. í þeirri mynd, sem n. leggur til, að ríkisstj. vilji sinna málinu á þeim grundvelli, og að hv. flm. geti unað við þá afgreiðslu. Ég vonast til, að með brtt. n., sem hún stendur öll að, sé náð í öllum verulegum atriðum því, sem fyrir honum vakti.