18.04.1940
Sameinað þing: 20. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 96 í D-deild Alþingistíðinda. (2572)

24. mál, innflutningur á heimilisnauðsynjum farmanna

*Brynjólfur Bjarnason:

Mér hefir verið sagt, að í þingfréttum í útvarpinu hafi verið tekið þannig til orðla: „Málinu var vísað til ríkisstjórnarinnar og er það þar með úr sögunni.“ Ég held nú, að það sé mála sannast, að þegar frv. og till. er vísað til ríkisstj., þá séu þau úr sögunni. Ef þessi till. á að fara þá leið, er sama sem að greiða atkv. á móti henni. Það er ágætt ráð til að koma málum úr sögunni, án þess beinlínis að láta í ljós álit sitt á þeim. Ég mun greiða atkv. á móti því, að málinu verði vísað til ríkisstj. Ég tel, að ef hv. þm. eru landvígir till., þá séu þeir ekki of góðir til að greiða atkv. á móti henni. Annars kvaddi ég mér hljóðs til þess að minna á, hvernig stendur á um till., sem ég og flokksbróðir minn fluttum í sameinuðu þingi. Hún er um það, að greiða sjómönnum í erlendum höfnum kaupið í erlendum gjaldeyri, og hefir sáralitla þýðingu að samþ. slíka till., sem hér liggur fyrir, nema sjómönnum sé jafnframt gefin trygging fyrir því, að þeir fái hinn ákveðna hluta af kaupi sína greiddan í erlendum gjaldeyri. Þessi till. okkar var borin fram á undan till. þeirri, sem nú er hér til umr., og var vísað til n. samtímis henni. En aðeins önnur er tekin fyrir, jafnvel þó að gagnslaust sé að ræða hana án þess að hafa tekið ákvörðun um okkar till. Þess vegna vil ég beina þeirri fyrirspurn til n., hverju það sæti, að hún hefir ekki tekið okkar till. til meðferðar enn.