18.04.1940
Sameinað þing: 20. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 101 í D-deild Alþingistíðinda. (2576)

24. mál, innflutningur á heimilisnauðsynjum farmanna

*Frsm. (Þorsteinn Briem):

Ég vil lýsa ánægju minni yfir því, að ég þóttist geta skilið það, er hv. flm. sagði, svo, að hann teldi þó nokkuð fengið af því, sem hann vildi fá, með þeirri afgreiðslu, sem meiri hl. n. lagði til, enda hefir meiri hl. n. látið í ljós ákveðna ósk um það, að hæstv. ríkisstj. framkvæmdi þetta á svo sanngjarnan og lipran hátt sem ástæður frekast leyfðu. Ég hygg, að meiri hl. Alþ. líti svo á, að sú ósk jafnist nokkurnveginn á við áskorun, og sérstaklega vil ég líta svo á eftir að hæstv. viðskmrh. hefir gefið yfirlýsingu sína, sem gengur í þá átt, að hann muni sýna alla þá lipurð í þessu máli, sem hann sér sér fært. En meiri hl. vildi hinsvegar ekki binda ríkisstj. alveg í þessu máli með því að hnitmiða fyrirfram, hversu langt hún mætti ganga í þessum efnum hvað erlendan gjaldeyri snertir.

Viðvíkjandi innflutningsleyfum hygg ég nú, að vart verði mjög staðið á móti afgreiðslu á innfluttum varningi í þessum efnum. Ég ætla, að þar verði sýnd öll viðleitni til að viðhafa lipurð í afgreiðslu leyfa, jafnvel þó að ekki verði stranglega gætt alls ytra forms.

Það er rétt, eins og drepið hefir verið á, að aðalatriðið í þessum efnum fyrir farmennina er það, hve mikið þeir fá af erlendum gjaldeyri. Það hefir löngum verið gefinn ádráttur um slíkt eftir því, sem mönnum sýndist í hvert sinn, og ekki farið alveg eftir föstum reglum, en þó hygg ég, að aðalreglan hafi verið sú, að farmenn hafi fengið 25% af kaupi sínu í erlendum gjaldeyri. Nú standa yfir samningar milli aðila um nokkra viðbót, en ekki er enn vitað, hve mikil hún verður. Þar teygja báðir aðilar sig svo langt sem fært þykir, og verður að líkindum samkomulag um, að sanngjörn regla verði gildandi um þetta, og að það gangi nokkurnveginn jafnt yfir alla farmenn.

Hv. flm. þessarar tili. vildi nú telja, að ekki væri varhugavert að láta farmenn fá erlendan gjaldeyri nokkurnveginn án sérstakra takmarkana, það myndi koma í sama stað niður, sömu vörur kæmu til landsins, hvort sem farmenn fengju mikinn gjaldeyri eða ekki. Ef farmenn fengju nógu riflegan erlendan gjaldeyri, myndu meiri vörur koma gegnum hendur annara aðila en verzlunarstéttarinnar heldur en að öðrum kosti myndi verða. Ég vil ekki væna farmannastéttina í heild sinni um neina misbrúkun í þessum efnum, því að ég ann henni, en ég treysti mér þó ekki til að taka ábyrgð á því, ef engin regla gilti í þessum efnum, að ekki myndu finnast undantekningar um það, að farmenn keyptu vörur erlendis, sem ekki yrðu fluttar hingað til lands ella, heldur notaðar til eyðslu erlendis.

Viðvíkjandi tollskoðun, sem hv. flm. drap á, þá hygg ég nú, að þar sé allmargs að gæta í því sambandi, og n. vildi ekki fyrirfram binda hendur framkvæmdarvaldsins í því atriði, með því að þar kemur ýmislegt til greina, og e. t. v. ekki alstaðar samskonar menn við að eiga í þeim efnum, og einnig að því leyti taldi meiri hl. n. réttara, að till. yrði vísað til ríkisstj., en þó með því fororði, að allt,. sem gert yrði í málinu, hnigi í þá átt, að reyna að finna hinn góða og gullna meðalveg.