17.04.1940
Sameinað þing: 19. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 111 í D-deild Alþingistíðinda. (2598)

111. mál, athugun á fjárhag þjóðarinnar

*Bjarni Bjarnason:

Ég vil mótmæla því, að þessi till. eigi sérstaklega heima hjá fjvn.; hún hefir það hlutverk að athuga skatta- og tollatekjur ríkissjóðs og gera till. um, hvernig því fé skuli varið, ennfremur að kynna sér nokkuð ríkisreksturinn. En þessi till. og þau atriði, sem þar koma fram, eiga alls ekki fyrst og fremst erindi til fjvn., heldur miklu fremur allshn., því að það eru einmitt þess háttar atriði, sem allshn. á að fjalla um.