11.04.1940
Neðri deild: 33. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 127 í D-deild Alþingistíðinda. (2622)
67. mál, saltfisksveiðar togara
Skúli Guðmundason:
Sjútvn. hefir haft þessa þáltill. til meðferðar og skilað áliti á þskj. 337. Ég hefi undirritað það nál. með fyrirvara, og sömuleiðis hv. þm. Barð.
Ég vil með örfáum orðum gera grein fyrir þeim fyrirvara, sem ég hefi í þessu máli. Þáltill. er um það, að ríkisstj. hlutist til um, að allir togarar fari á saltfisksveiðar nú á vertíðinni, a. m. k. 4–5 vikna tíma, og að fiskurinn, sem veiðist, verði að mestu leyti seldur út úr landinu fullverkaður. Það er öllum hv. þm. kunnugt„ að íslenzku togararnir hafa verið gerðir út með dapi undanfarin ár, langflestir þeirra, og hafa flest útgerðarfyrirtækin tapað mjög miklu. En frá því að stríðið hófst á síðastl. ári hafa ísfisksveiðar togara og flutningar til Englands gefið mörgum þeirra allverulegan hagnað. Nú skal ég ekki mæla gegn því, að rétt sé, að ríkisstj. athugi möguleika til þess að fá togarana til þess að fara á saltfisksveiðar nú á vertiðinni, af því að það myndi veita meiri atvinnu í landi heldur en áframhaldandi ísfisksflutningar þeirra. En ég vil þó taka það fram, að ég tel ekki, að það eigi að beita neinum þvingunarráðstöfunum við togaraútgerðarfyrirtækin í þessu efni. Ef það kæmi í ljós við athugun þessara mála, að horfur væru svo óálitlegar um aflabrögð eða um sölumöguleika á saltfiski, að það væri fyrirsjáanlegt, að þarna væri um stórtap að ræða á þessari útgerð, en hinsvegar lægi fyrir, að möguleiki væri fyrir skipaeigendur að hafa áframhaldandi hagnað af ísfisksveiðum eða ísfisksflutningum, þá tel ég tæplega fært að beita nokkrum þvingunarráðstöfunum við togaraútgerðina í þessu efni, því að ég tel illt að bæta við það tap, sem útgerðarfyrirtæki hafa orðið fyrir á undanförnum árum og mörg þeirra stynja nú undir. Ég vil taka það fram, að ég tel sjálfsagt, að þessir möguleikar séu athugaðir en um framkvæmdirnar fari eftir því, hvað sú athugun leiðir í ljós. Ég fyrir mitt leyti hefði getað vel fellt mig við þá afgreiðslu á þessu máli, að vísa því til ríkisstj., en vildi þó ekki gera um það neinn ágreining við meiri hl. n., og hefi því aðeins undirritað nál. með fyrirvara, sem ég hefi nú gert nokkra grein fyrir.