16.04.1940
Efri deild: 37. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 216 í B-deild Alþingistíðinda. (300)

117. mál, veðurfregnir

*Jónas Jónsson:

Ég vildi bæta nokkrum orðum við í áframhaldi af því, sem hv. 1. þm. Reykv. sagði. — Það er að vísu mjög óþægilegt, að hætt skuli að varpa út veðurfregnum, og það væri mjög æskilegt, að hægt væri að halda því áfram, ekki aðeins vegna þeirra, sem eru á sjónum, heldur einnig vegna þeirra, sem á landi eru. En til þess að full not séu að veðurfregnunum, þurfa þær líka að vera áreiðanlegar. Nú hefir, eins og hæstv. ráðh. gat um, þrengzt sá upplýsingahringur, sem veðurspárnar eru byggðar á, og torveldar það mjög, að hægt sé að byggja á veðurspánum sem áreiðanlegum.

Ég greiði glaður og ánægður atkv. með þessu frv., enda eru þetta ekki nema lítilsháttar óþægindi fyrir okkur í samanburði við þær fórnir, sem aðrir verða að færa nú fyrir sitt land. Það væri og næsta óhyggilegt af okkur að halda áfram að varpa út veðurfregnum, eins og nú er ástatt, svo að unnt væri ef til vill að kenna okkur um, að þessi eða hin slys hafi orðið vegna þess að byggt hafi verið á veðurfregnum frá Íslandi.

Þó ég skilji, að það sé ekki þægilegt vegna okkar atvinnuvega að vera án veðurfregnanna, þá hygg ég, að engan muni iðra þess, þótt við séum ekki að stinga nefinu milli stafs og hurðar hvað þetta snertir.