14.03.1940
Sameinað þing: 6. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 62 í B-deild Alþingistíðinda. (37)

1. mál, fjárlög 1941

Fjmrh. (Jakob Möller):

Út af því, sem hv. frsm. (BjB) sagði í lok ræðu sinnar, að hið eina, sem fjvn. gæti gert að sinni tillögu til að tryggja afkomu ríkissjóðs á árinu 1941, umfram þær niðurfærslur einstakra gjaldaliða, sem samkomulag er um, væri að hækka úr 20% í 35% lækkunarheimild ólögboðinna gjalda, þá vil ég taka það fram, að mér hafði skilizt, að hv. fjvn. hefði a.m.k. haft til athugunar möguleika til frekari lækkunar einnig á ýmsum lögboðnum gjöldum eða heimildir til lækkunar. Það liggur í augum uppi, að samkv. þeim till., sem n. hefir gert, mundi vera um allalvarlegan ágreining að ræða milli mín og hennar. Það er rétt hinsvegar, að hækkanir, sem n. hefir gert einmitt á þeim liðum fjárl., sem ég hafði lækkað, byggjast á því, að hún gat hugsað sér að taka tillit til þessarar varasemi, sem ég vildi sýna, á annan hátt. Ég lýsti yfir því, þegar ég lagði fram fjárlfrv., að ég væri fús að ræða alla möguleika í þessum efnum. En að sjálfsögðu var það því skilyrði bundið, að fjárl. yrðu þannig afgreidd, að ég gæti talið afgreiðsluna forsvaranlega. Ég hafði haft í huga, að í stað þess að hafa ýmsar fjárveitingar eins háar og n. leggur nú til, kæmi til mála, að ríkisstj. yrði heimiluð viss fjárhæð til þess að bæta upp þær lækkanir, ef afkoma ríkissjóðs reyndist betri en gert er ráð fyrir í frv., þannig að þá þurfti ekki að koma til niðurskurðarins. Í samtali, sem tveir af nm. áttu við hæstv. forsrh. (HermJ) og mig, var um þetta rætt. En fulltrúar n. gátu ekki sætt sig við það, og þó skildist mér samkomulag hafa náðst um, að n. lækkaði ekki aðeins ólögboðin gjöld, heldur að heimilaðar yrðu lækkanir fleiri gjalda, auk þess sem gert er ráð fyrir í frv., sem fyrir þinginu liggur, um bráðabirgðabreyting nokkurra laga, og yrðu þær lækkanir eða heimildir til lækkana ákveðnar í sérstökum lögum. Ég leit svo á, að það mætti einu gilda, hvort gjöldin yrðu áætluð ríflega, með þessa heimilt að baki, þannig að ef vissir erfiðleikar yrðu, hefði ríkisstj. heimild til þess að takmarka þessar greiðslur. Hinsvegar hefði ríkisstj. heimild til að hækka þær, ef fjármagn yrði fyrir hendi til þess. Hv. frsm. lýsti því, hve stutt hefði verið milli þinga, og þar sem fjvn. hefði að mestu verið skipuð sömu mönnum, hefði þess ekki verið að vænta, að hún liti mjög öðrum augum á ástandið nú heldur en í lok síðasta þings, þegar fjárl. yfirstandandi árs voru afgr. Þetta er náttúrlegl rétt, það sem það nær, því í rauninni var ekki um það að ræða, að ástandið í heiminum breyttist neitt verulega á þeim rúma mánuði, sem leið milli þinga, eða horfurnar fyrir afkomu ríkissjóðs yrðu betri. Eftir að hafa athugað gaumgæfilega, hvernig fjárreiðum ríkissjóðs var komið, verð ég hinsvegar að álíta, að ástandið hafi versnað. hað kann vel að vera, að hv. fjvn. hafi gert sér grein fyrir þessu, en ég verð að játa, að ég gerði mér ekki fulla grein fyrir því fyrr en á því tímabili, sem leið frá því, að síðasta þingi var slitið, og þangað til þetta kom saman. Þó hafði ég hugmynd um, að fjárhagurinn væri örðugur og að við ýmsa örðugleika myndi verða að stríða á næstunni. Ég gerði grein fyrir því í framsöguræðu fjárl., að lausaskuldir ríkisins, sem yrði nú þegar að ráðstafa, næmu 21/2 millj. kr. Ég benti einnig á það, að samkvæmt fjárlagafrv. mætti gera ráð fyrir 1 millj. kr. greiðsluhalla, sem hlyti að koma í sambandi við greiðslu á dýrtíðaruppbót til starfsmanna ríkisins. Það eru því alls 31/2 millj. kr., sem ríkissjóður verður að ráðstafa. Það hefir stundum verið talið forsvaranlegt, að afborganir af lánum væru greiddar með því að taka ný lán, en þótt svo hafi verið hingað til, þá er viðhorfið breytt hvað þetta snertir. Þegar um er að ræða 31/2 millj. kr., sem þyrfti að fá lán fyrir, og halda ætti áfram á sömu braut, að gera ráð fyrir, að afborganir yrðu greiddar með nýjum lánum, þá er ég hræddur um, að fari að þyngjast fyrir um að fá lán. Ég er hræddur um, að fullörðugt verði að fá lán til þess að standa skil á þeim greiðslum, sem þegar eru fallnar, þó að ekki verði bætt við nýjum lánum. Ég tel því af þessum ástæðum, að viðhorfið hafi mjög breytzt, þó að stutt væri um liðið. Þess vegna taldi ég ekki fært að afgr. fjárlagafrv. til þingsins með svipuðu móti og fjárl. síðasta árs voru afgr., jafnvel þó að það hefði mátt teljast forsvaranlegt, eins og þá horfði við. Það er annað að halda alltaf áfram á sömu braut, að hlaða þungum lausaskuldum hverri ofan á aðra, heldur en þó að hugsa sér, að hægt sé að fljóta áfram eitt ár með því að bæta við þær. En út frá því sjónarmiði, sem ég gerði grein fyrir í upphafi. hvernig mætti mæta því, ef afkoma ríkissjóðs yrði ekki eins góð og við getum gert okkur vonir um, þá gæti þó afgreiðsla fjárl. eins og hv. fjvn. leggur til talizt forstaranleg. Ég vænti þess því, að þessi lagaheimild, jafnframt fjárl., verði afgr., og þá þarf ekki frekar að deila um meðferðina á fjárl.

Ég þarf ekki að ræða brtt. hv. fjvn. aðrar en þær, sem mestu valda um niðurstöður fjárl. Hv. n. hefir ýmist fellt niður eða gert till. um hækkun á ýmsum þeim liðum, sem ég hafði gert ráð fyrir, að yrðu lækkaðir. En til þess að vinna þetta upp hefir n. hækkað ýmsa tekjuliði, sem að vísu má deila um, hvað réttlátt sé. En það hefir vitanlega enga þýðingu fyrir afkomu ríkissjóðs að breyta tölunum á tekjuáætluninni, til þess að hún standist, og ég vil vænta þess, þegar n. heldur áfram meðferð sinni á frv. til næstu umr., að hún byggi ekki um of á þeim möguleikum, að auka megi tekjuliðina. Ég sé, að n. hefir hækkað tekju- og eignarskattinn um 100 þús. kr. Það kann að geta orkað tvímælis, hversu réttlátt það er, það þótti a.m.k. ekki fært á síðasta þingi, og ástæðurnar, sem ollu því, tel ég ekki mikið breyttar. Þá er þess að gæta, að útgerðin er mikið til skattfrjáls, og að gengistap kaupsýslustéttarinnar er úr sögunni á næsta ári, þegar kemur að því að reikna út skattinn. En að afkoma almennings gæti orðið þeim mun betri, að tekjuskatturinn yrði meiri en gert er ráð fyrir á þessu ári, er eitt af því, sem mjög varlegt er að áætla. Það getur eins vel átt sér stað, að afkoman verði miklu verri. Eins og nú horfir, getur vei farið svo að framleiðsla landsmanna stöðvist að meira eða minna leyti vegna flutningsörðugleika, og að mjög erfitt verði að fá ýmsa hluti, sem til framleiðslunnar þarf, við undirbúning fjárlagafrv. taldi ég rétt að áætla varlega, vegna þess að undir því er að hálfu leyti komið, hvernig tekst að tryggja það, að ekki verði greiðsluhalli.

Hv. frsm. gat þess, að n. hefði breytt áætluninni um tekjur af landssimanum, þannig að ýmsir gjaldaliðir hefðu verið lækkaðir um ii0 þús. kr. N. heldur fast við það, að framkvæmdir, sem þurfi efniskaup til, geti fallið niður, og að þess vegna sé hægt að lækka þessa gjaldaliði. Hinsvegar er því haldið fram af póst- og símamálastjóra, að útgjöldin muni verða það, sem hann áætlar, hvað sem kunni að verða sett í fjárl. Ég held, að þetta muni reynast eins og póst- og símamálastjóri heldur fram; það hefir líka verið þannig á undanförnum árum, að þetta hefir orðið svipað því, sem hann hefir áætlað. Að öðru leyti get ég vísað þessum málum til hæstv. atvmrh., hann á mestu um þau að ráða. Um hækkunina á tekjum ríkisútvarpsins skal ég ekki segja, hv. frsm. sagði, að það væri gert í samráði við till. útvarpsins, og má vel vera, að svo sé.

N. hefir hækkað verðtollinn um 260 þús. kr. Ég geri ekki ráð fyrir, að líkur séu fyrir því, að hann muni verða meiri en hingað til, að vísu hefir vöruverð hækkað og flutningsgjöld sömuleiðis en það verður ekki talið annað en eðlilegt, að eftir því, sem tímar líða, komi verðhækkunin meira fram. Ég skal geta þess, að það verður að telja vafasamt, að lengi verði fært að láta tollana ná til hækkandi farmgjalda. Það hefir alls ekki verið tekin nein endanleg ákvörðun um það, hvort eigi að láta tollana fylgja farmgjaldahækkuninni alveg til enda, eða að nema skuli staðar, en vitanlega hefir það nokkur áhrif á tekjur þær, sem um er að ræða í þessu sambandi. Ég sé, að n. hefir tekið upp aftur aths. um greiðslu til ríkisskattan., 10 kr. á mann fyrir hvern fundardag. Mér þykir þetta hálfleiðinlegt, og ég held, að þeir, sem eru í ríkisskattanefnd, ættu að vera sæmilega haldnir af því, sem þeim hefir verið úrskurðað fyrir sitt starf. Þess er að gæta, að þessir menn vinna ekki aðeins á fundum, heldur einnig utan funda, og ættu þess vegna ekki að fá sérstaka greiðslu fyrir.

Till. n. til vegamála sé ég enga ástæðu til að fara út í sérstaklega, ég hefi áður gert grein fyrir því. Ég sé, að n. hefir hækkað þetta framlag aliverulega, jafnvel frá till. vegamálastjóra. en um það hefi ég ekkert sérstakt að segja, get að mestu vísað til þess, sem ég hefi áður sagt þar um. Hið sama er að segja um framlög til hafnarbóta og bryggjugerða. Ég ætla ekki að gera frekari aths. við einstakar till. hv. fjvn. að þessu sinni, þær byggjast að mestu á því, að halda í svipuðu horfi og verið hefir um verklegar framkvæmdir, en um það hefi ég rætt áður. Þó get ég ekki alveg gengið framhjá till. n. um dýrtíðaruppbót, vegna þess að það stendur í beinu sambandi við horfurnar á því. hvernig afkoman verður. Hér er yfirleitt um lækkanir að ræða, sem ég hefi ekki trú á, að geti staðizt. Laun opinberra starfsmanna munu nú vera um 51/2 millj. kr. Þess vegna er það, að ef dýrtíðaruppbótin er áætluð 350 þús. kr.þá er hún töluvert lægri heldur en ef farið væri eftir svipuðum mælikvarða og við útreikning dýrtíðaruppbótar til verkamanna samkvæmt i. frá síðasta þingi. Nú er það svo, að ástæða kynni að vera til þess að gera mun á almennum verkamönnum og starfsmönnum ríkisins. Þess er jafnframt að gæta, að 1. frá síðasta þingi fjalla ekki aðeins um þá verkamenn, sem eiga það svo að segja undir veðri og vindi, hvort þeir hafa atvinnu þennan daginn eða ekki, heldur er þar einnig um að ræða menn, sem hafa fasta atvinnu alveg eins örugga og fjöldi af starfsmönnum ríkisins. En þó að gert væri ráð fyrir, að dýrtíðaruppbótin yrði ekki hærri 1941 heldur en í fjárlagafrv. árið sem leið, þá eru engar líkur til þess, að þessi áætlun myndi geta staðizt. Það má ganga út frá því sem gefnu, að óhjákvæmilegar umframgreiðslur munu nema a.m.k. þeim mismun, sem áætluninni nemur í frv. Ég er mjög hræddur um, að það verði aldrei komizt hjá því, að verulegur greiðsluhalli verði á þessari áætlun.

Ég sé ekki á þessu stigi málsins ástæðu til þess að orðlengja frekar um þetta frv. Þingm. munu mestu um það ráða, hvernig farið verður með einstakar till., sem hv. fjvn. hefir gert, og ég geri ráð fyrir, að þær séu gerðar með fyllstu sanngirni og með tilliti til hagsmuna og áhugamála einstakra þm.