14.03.1940
Sameinað þing: 6. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 66 í B-deild Alþingistíðinda. (40)

1. mál, fjárlög 1941

*Einar Olgeirsson:

Herra forseti! Aðalatriðin í því, sem ég vildi segja, eru um fjárlfrv. yfirleitt og einstakar gr. þess, brtt. þær, sem fram hafa komið frá hv. fjvn., svo og það, hvernig farið hefir um eldhúsumr. eða þær umr. um fjárl., sem venjulega hefir verið útvarpað áður. Allt þetta vildi ég gera að umræðuefni almennt og einnig þá stefnu, sem fram hefir komið í frv. og viðurkennd hefir verið af fjmrh. og raunar líka af hv. fjvn. Það er, að það eina, sem þessir aðilar geta fundið til að spara á, eru verklegu framkvæmdirnar. Það má segja, að það eina, sem hv. fjmrh. og hv. fjvn. hefir greint á um, er, að hv. fjmrh. hefir viljað skera niður verklegu framkvæmdirnar með því að minnka framlagið á fjárl., sem til þeirra er ætlað, en hv. fjvn. hefir viljað hafa þá aðferð, til þess að það væri ekki alveg eins áberandi, að heimila ríkisstjórninni að lækka upphæð þá, sem áætluð er á fjárl. til verklegra framkvæmda, um allt að 35%. Hæstv. fjmrh. vildi ganga beint framan að fólkinu og segja því, að um þessa upphæð verði lækkað það fé, sem fáist til verklegra framkvæmda, en þá kemur hv. fjvn. með þá till., að ríkisstjórninni verði gefin heimild til að skera niður fjárl.-upphæðina um 35%, eða um 2 millj. kr., úr 7 millj. niður í 5. Þarna kemur ekki fram mikill stefnumunur, heldur aðeins mismunandi aðferðir við, hvernig á að segja fólkinu frá því, að það eigi að taka frá því brauðið, sem það á að lifa af. Hinsvegar er hæstv. fjmrh. og fjvn. sammála um það, að það eina, sem hægt sé að skera niður, séu verklegu framkvæmdirnar. Hinsvegar á það ekki að ná nokkurri átt að hreyfa við hálaunamönnunum í sambandi við fjárl., þeirri stétt þjóðfélagsins, sem hefir haldið við hálaununum og bitlingunum. Slíkt eru þó allir stjórnarflokkarnir svo innilega sammála um, að sé óþarfi, þegar þeir eru farnir að tala við kjósendurna. Þar að auki virðast báðir þessir aðilar, fjmrh. og fjvn., sammála um, að ekki sé hægt að leggja meiri skatta á landsmenn eða ná inn nýjum tekjum með þeim. Þótt upplýst sé, að nú þegar eru meiri vandræði með afkomu almennings en þekkzt hafa um langan aldur, þá eru samt stórgróðamennirnir, togaraeigendurnir, að mestu leyti skattfrjálsir. Það bólar ekki enn a.m.k. á neinum till. frá stjórnarfl. um að afnema þetta skattfrelsi eða breyta þeim i. að neinu leyti. Aðalstefnan, sem fram kemur í fjárl. og till. fjvn., er sú, að skera niður verklegar framkvæmdir, en hylja það allt fyrir almenningi, sem snertir hálaunamennina og stjórnmálamennina.

Ég ætla að taka nokkur dæmi um það, hvernig breyta mætti frv., ef nokkur vilji væri fyrir hendi hjá þinginu til að gera þar nokkuð til úrbótar. Það, sem í fyrsta lagi hefði verið sjáifsagt að gera í sambandi við þetta þing, út af öllum þeim umkvörtunum, sem sífellt heyrast um það, hve erfitt sé að afla nýrra tekna, var það, að athuga, hvort ekki væri hægt að ná inn meira fé með því að leggja skatt á styrjaldargróðann. Hann er sannarlega fyrir hendi, þótt borgarablöðin reyni að hylja ham, eins og þau frekast geta. Á ísfisksveiðunum mun t.d. hafa orðið sá mesti gróði, sem þekkzt hefir á nokkrum stórrekstri á Íslandi. Einstakir togarar hafa grætt upphæðir, sem nema hundruðum þúsunda króna. Sá gróði, sem fengizt hefir á ísfiski frá því að stríðið hófst, mun þegar vera farinn að skipta milljónum króna, ég gæti hugsað mér. að ekki væri fjarri lagi að gizka á .1–3 milljónir. Ég þykist vita, að það sé ekki til neins að koma með fyrirspurnir um það hér á Alþingi, hve mikill þessi gróði er, svo hægt væri að sjá, hvaða tekjustofnar eru til fyrir þjóðina til að leggja á skatta á tímum eins og þessum, því ráðh. telja það alveg sérstaklega sína skyldu að hyima yfir þennan gróða, enda er annar ráðh. Sjálfstfl. eigandi að slíku stórgróðafyrirtæki, en hinn hefir margra ára reynslu í því að hylma yfir með fjársukki bankavaldsins. Þess vegna þýðir ekkert að spyrja ríkisstjórnina um þessa tekjustofna og hvað hægt væri á þá að leggja. því hún skoðar það sem sitt aðalhlutverk að hindra, að lagðir séu skattar á þá menn, sem geta borið þá, en pína þá út úr þeim, sem ekkert mega missa, og láta til þeirra, sem hafa fullar hendur fjár fyrir. Tollarnir eru þyngdir að sama skapi og skattur á stórgróðamennina er afnuminn. Fleira að segja, þegar síðasta Alþingi, sem þó var engan veginn gott þing, samþykkti heimild handa fjmrh. um það, að nýju tollarnir, sem reiknast eiga af cif-verði varanna, skyldu verða reiknaðir af flutningskostnaðinum eins og hann var fyrir stríð, en ekki með þeirri hækkun, sem á honum hefir orðið siðan stríðið hófst, — meira að segja þessi heimild er ekki notuð. Nei, hæstv. ráðh. notar tækifærið og hækkar tollana á nauðsynjavörum almennings fram yfir það, sem jafnvel síðasta Alþingi ætlaðist til. Þegar svo kemur fram fyrirspurn til ráðh. í þinginu um það, hvers vegna þessi heimild sé ekki notuð, þá feila þm. þeir, sem eru í vasa þjóðstjórnarinnar, að leyft skuli að bera fram slíka fyrirspurn. Það er því augljóst, að núv. ríkisstj. á að haldast það uppi óátalið að haga því eftir eigin geðþótta, hvort hún notar eða notar ekki, eða misnotar, þær heimildir, sem þingið veitir henni. Þar með eru engar hömlur lengur lagðar á það, hvað framkvæmdavaldið getur leyft sér. Það má í því sambandi minna á þær stefnuskrár, sem flokkarnir hafa, er nú fara með völd. Þeir munu allir hafa það á stefnuskrá sinni að hafa tolla á nauðsynjavörum sem lægsta, og sérstaklega leggur Alþfl. mikið upp úr því í kosningaræðum, að láta þá borga brúsann, sem efni hafa á því, en sleppa alþýðunni við tolla af nauðsynjavörum. En stefna ríkisstjórnarinnar er aftur á móti sú, að okra á almenningi, og ganga þar jafnvel skör framar en Alþingi hefir ætlazt til.

Þá mætti benda á það í sambandi við, hvar tekjustofna er helzt að leita, að eignarskattur er ekki enn orðinn neitt tilfinnanlegur hér á landi. Ástandið er svo í landinu, að rúml. þúsund menn telja fram sjálfir í skuldlausa eign og skattskylda um 80 millj. kr., en af því er varla greitt meira í skatt en 200 þús. kr. Finnst manni það varlega álagt, a.m.k. á tímum eins og þessum, þegar fjöldi manna á við neyð að búa. Þar virðist nú hægt að finna tekjustofn í sambandi við fjárl., ef forráðamenn flokkanna og ríkisstj. hefðu áhuga fyrir slíku.

Þá skal ég gera að umtalsefni nokkur helztu atriðin í sambandi við gjöldin á fjárl. vil ég taka fram í því sambandi þær upplýsingar, sem fram komu í framsöguræðu hæstv. fjmrh., um að ríkið hefði tapað á gengisfallinu fyrsta árið vegna hækkaðra vaxta nálægt 750 þús. kr. virðist þar ætla að koma bráðlega í ljós, að gengislækkunin hefir ekki reynzt sérstaklega hentug ráðstöfun til að bæta úr vandræðum sjávarútvegsins. Það virðist þegar á fyrsta ári ætla að verða ríkinu nokkuð dýrt.

Þá ætla ég, af gömlum vana, að minnast ögn á 8. gr., borðfé konungs, sem hefir verið hækkað úr 60 þús. kr. í 75 þús. Þess má og geta, að hæstv. fjmrh. hefir á árinu 1939 hækkað þá upphæð upp í 67 þús. kr. utan fjárl. að Alþingi fornspurðu. Það er auðséð, að þjóðstjórnin er óvenju nákvæm með það, að sjá um, að konunginum sé greitt í dönskum krónum. Þá liggur beint við að spyrja, hvers vegna aðrir atvinnuleysisstyrkir í landinu hafa ekki líka verið hækkaðir um 10%? Það er hart, að hæst launaði embættismaður íslenzka ríkisins skuli fá slíka uppbót, en íslenzkir atvinnuleysingjar fá þá einu uppbót, að eiga á hættu, að það atvinnubótafé, sem á að veita þeim atvinnu, verði skorið niður um 35%. Þetta er gott dæmi um það, hvernig ríkisstj. hagar sér annarsvegar gagnvart þeim ríku og hinsvegar gagnvart þeim fátæku.

Í 10. gr. eru útgjöldin við ríkisbáknið á Íslandi. Það er auðséð, að þar eru útgjöld, sem ekki má snerta við. Þm. Sósíalistafl. hafa hvað eftir annað borið fram till. um, að ríkisstjórnin athugi, hvað hægt er að spara í sambandi við ríkisbáknið, og hvað þar er hægt að skera niður, sérstaklega í sambandi við háu launin. Þessar till. okkar hafa aldrei einu sinni fengizt ræddar. Hinsvegar vildi það til á árunum 1933 og 1934, að Alþingi neyddist til að skipa nefnd til að rannsaka þessi mál. Sú n. komst að þeirri niðurstöðu, að án þess að skera niður laun við mikilmenni þjóðfélagsins, eins og bankastjóra og aðra slíka menn, væri hægt að spara 700 þús. kr. með því að lækka háu launin og skera niður bitlingana. Þessar till. launamálan. voru aðeins framkvæmdar að örlitlu leyti, en yfir 90% af þeim var stungið undir stól. Það er talið, að þau beinu útgjöld, sem ríkið hefir af launagreiðslum embættismanna, séu um 5 millj. kr., en þau laun, sem ríkið í raun og veru greiðir, eru miklu meiri. Ég gæti trúað, að þau væru á milli 10 og 12 millj. kr. Rannsókn á þessum efnum fæst engin, og það er ekki til neins að bera fram fyrirspurnir um það, — upplýsingar fást engar. Hitt mun sönnu nær, að ef einhver vill segja sannleikann um þetta, þá yrðu ráðstafanir gerðar til þess af valdhöfum þjóðarinnar, að slíkt kæmist ekki fram. Það þarf ekki langt að leita til þess að finna orsök þess að aðalmarkmið þjóðstjórnarinnar er að viðhalda þessu ríkisbákni eins og það er, viðhalda bitlingunum og háu laununum og sjá um, að engin rannsókn geti farið fram. Það er upplýst af einum hv. þm. á síðasta þingi, að eitthvað um 30 þm. hefðu sjálfir yfir 10 þús. kr. laun eða meira, og flestir þeirra taka meiri hl. þeirra launa frá ríkinu. Það er líklega lítilla endurbóta eða sparnaðar að vænta af hálfu Alþingis meðan ástandið er þannig, að meiri hl. þm. hefir eigin hagsmuna að gæta í því, að almenningur fái því ekki framgengt á sínu eigin þingi, að fluttar séu verulegar sparnaðartill. við rekstur ríkisbáknsins, sem þegar er orðið svo þungt, að þjóðin er að kikna undir því. Það er eftirtektarvert, að þm. þjóðstjórnarinnar, hv. fjvn. og hæstv. fjmrh. sjá engar aðrar frambærilegar till. til sparnaðar en að skera niður verklegar framkvæmdir á einn eða annan hátt.

Það væri gaman, ef hægt væri að fá upplýsingar frá hæstv. fjmrh. í sambandi við ýmis einstök atriði viðvíkjandi ríkisbákninu, en ég býst ekki við, að til neins sé að spyrja að slíku. T.d. væri gaman að fá upplýsingar um verzlunarfulltrúann í Ameríku. Honum eru ætlaðar 75 þús. kr. í fjárl. Ég hefi komið áður með fyrirspurn um, hvort þetta væru einu launin, sem viðkomandi fulltrúi fengi, eða hvort skrifstofa hans ætti þar að auki að fá umboðslaun af viðskiptum sinum. Þeirri fyrirspurn var ekki svarað, enda býst ég við, að þetta sé eins og önnur viðskipti þjóðstjórnarinnar, þau eigi ekki að sjá dagsins ljós. Það á að nota þá þægilegu aðferð. að dylja allar viðskiptaaðferðirnar, og neita svo stjórnarandstæðingunum um upplýsingar þar að lútandi.

Þá er líka fróðlegt að athuga 11. gr. fjárlfrv., 10. lið, þar sem ætlaðar eru 80 þús. kr. til lögreglunnar í Reykjavík af tekjum ríkissjóðs. væri gaman að fá upplýsingar frá dómsmrh., sem er yfirmaður lögreglumálanna, um það, hve mikill hluti af þessu fé á að fara til vopnakaupa, sérstaklega vegna þess, að sá sami hæstv. ráðh. neitaði með öllu, að slíkt kæmi til mála, en lét um leið breyta gildandi I. á síðasta þingi með það eitt fyrir augum að geta keypt vopn handa lögreglunni. Þá væri líka gott, ef almenningur gæti fengið að vita, hve miklu af erlendum gjaldeyri ætti að verja til þessa, á sama tíma og sjómenn fá ekki gjaldeyri til að kaupa fyrir ný skip eða efni til þeirra, svo hægt sé að smíða þau innanlands. En það mun vera sama máli að gegna um þetta og önnur viðskipti þjóðstjórnarinnar, það á að knýja það í gegn, án þess að alþjóð viti nokkuð um það. Þær till., sem nú hafa verið lagðar fram við fjárlfrv. hæstv. fjmrh., horfa sízt til bóta frá því, sem fjárl. voru fyrir árið 1939, og vil ég fyrir mitt leyti athuga, hvað hér gerist og taka eftir því afstöðu til till., sem fram koma.

Þá vil ég að síðustu gera að umtalsefni 16. gr. fjárlfrv. og það, hvernig þar er hugsað fyrir hag fólksins af hálfu ríkisstjórnarinnar. Í 16. gr. eru aðalframlög til verklegra framkvæmda, að undanteknum samgöngumálum. Ég þarf ekki að brýna það fyrir hv. þm., hverskonar atvinnuútlit er nú í landinu. En í fjárlfrv. virðist fyrst og fremst hugsað um það að tryggja atvinnu hálaunamannanna og gróða togaraeigendanna, en ekki skeytt um það, þótt almenningur sjái ekkert annað framundan en vaxandi atvinnuleysi, því það er almennt viðurkennt, jafnvel af stjórnarflokkunum, að fyrirsjáanlegt er, að byggingarvinna mun að mestu leyti leggjast niður, og enn er vafasamt, hvort saltfisksvertíðin verður nokkur. Þar að auki fer atvinna við verzlun og iðnað eðlilega mjög minnkandi. Ástandið á fjölda mörgum heimilum verkamanna er þannig, að þar sverfur skorturinn meira og meira að, áður en þetta ástand hófst, leið meiri hl. verkamanna hér á landi skort, meira að segja miðað við það, sem hagstofa Íslands hefir reiknað út og viðurkennt, að sé nauðsynlegt fyrir menn að hafa til að geta dregið fram lífið á sæmilegan hátt. \fenn hefðu nú getað ætlazt til, að Alþingi hefði reynt að gera eitthvað til að draga úr þessum vandræðum, sem vofa yfir, en af því, sem hér er lagt til, er auðséð, að engar ráðstafanir hafa verið gerðar í þá átt. Hæstv. fjmrh. leggur til með þessu frv., að mikið af því, sem ætlað var til verklegra framkvæmda, sé beinlínis skorið niður, og hv. fjvn. gerir þá eina breytingu, að leggja til, að ríkisstjórninni verði gefin heimild til að skera þessi framlög niður. Það er allur munurinn. Það má minna á það nú, þegar þetta frv. er komið fram frá ráðh. Sjálfstfl., hvernig þessir sömu menn töluðu um þessi mái, þegar þeir voru í stjórnarandstöðu fyrir tveimur árum. Þá talaði núverandi atvmrh., Ó. Th., um það, að sjálfsagt væri að auka fjárframlög til útgerðarinnar og annara verklegra framkvæmda í landinu, því við það, að atvinnulífið blómgaðist, myndi hagur landsmanna batna. Og hv. 2. þm. Reykv. (JakM) greiddi atkv. með till. okkar sóslalista um að hækka atvinnubótaféð úr 500 þús. kr. og upp í 100 þús. kr. En nú er hann orðinn fjmrh. og greiðir nú ekki aðeins atkv. á móti till. um það að hækka atvinnubótaféð, heldur leggur til, að sér verði gefin heimild til þess að skera það niður um 35%, ef honum finnist með þurfa og tekjurnar ætla ekki að streyma inn í ríkissjóðinn eins og hæstv. atvmrh. spáði, meðan hann var bara formaður Sjálfstfl. Það virðist því svo sem þessum hv. þm. og ráðh. Sjálfstfl. finnist tiltölulega lítið gagn að þeim till., sem þeir báru fram, meðan þeir voru í stjórnarandstöðu. Og þeir taka nú upp sömu aðferðir, sem sú stjórn hafði, sem þeir áður álösuðu mest. Af hálfu Framsfl. og þeirra ráðh., sem fyrir hans hönd sitja í ríkisstj., virðist það vera helzt eitt, sem þeir sífellt japla á, að fólkið eigi bara að fara út í sveit og rækta landið. En svo voru þeir á síðasta þingi með till. um að skera niður styrkina til jarðræktarinnar í landinu. Þarna er einkennilegt samræmið á milli. En nú leggur hv. fjvn. einróma til, að jarðræktarstyrkurinn verði hækkaður frá því, sem gert er ráð fyrir í fjárlagafrv.

Það kom fyrir atvik nýlega, sem varpar skæru ljósi yfir það, hvernig þessi ráð koma fram í reyndinni, að lækka tillög til landbúnaðarins. Það mun hafa verið ungur framsóknarmaður, sem vildi rækta landið, sem skrifaði hv. 2. þm. Árn. (BjB), frsm. fjvn., og þm. birti þetta bréf í Tímanum og sagði frá því þar, að þennan unga mann, sem er nýgiftur, langaði til þess að komast í sveit með konu sína, til þess að geta skapað nýbýli í staðinn fyrir eitthvert af þeim býlum, sem eru að leggjast í eyði. Hann lýsti því, hvaða erfiðleikar eru á því fyrir fólk úr bæjum að komast upp í sveit til þess að byggja landið og rækta. Hann lýsti yfir, að með þeim niðurskurði á styrkjum til landbúnaðarins, sem nú eru á döfinni, væru engin skilyrði fyrir slíka menn sem hann að byggja og rækta landið. Og þm. Framsfl. svaraði honum. Og ráðið, sem hann gaf, var heldur kaldranalegt. Ráðið var það að fara í víst til einhvers stórbónda, og þessi setning stóð í greininni: „Stærri bændum gæti verið að slíku mjög mikið hagræði.“ Ég býst nú við, að þessi setning sé nokkuð táknræn fyrir stefnu þá, sem Framsfl. hefir tekið í þessu efni. Þá menn, sem þurfa að þiggja hjálp af sveit, á að flytja nauðuga upp í sveit til þess að vinna hjá stærri bændum. Og svo á að segja við hina, sem vilja flytja úr kaupstöðum upp í sveit til þess að byggja og rækta landið, en vilja ekki vinna hjá öðrum: „Þið fáið ekki nauðsynlegan styrk til að stofna heimili í sveit, og hungrið á svo að píska ykkur til að sleppa því að stofna sjálfstæð býli í sveit, heldur ráða ykkur í vist hjá stærri bændum, því að þeim getur verið hagræði að því. Þetta er það, sem blasir nú við framtíð æskunnar í landbúnaðarmálum á þessu landi. Það væri kannske ekki mikið, þó þessir stjórnmálafl. skæru niður alla styrki til þess að bjarga sér í landinu, ef skildir væru þá eftir möguleikar til þess að fá að bjarga sér í friði fyrir ríkisvaldinu og flokkunum, sem standa að ríkisstj. En það er nú ekki svo vel, því að þó að einhverjir menn vilji koma sér upp sjáifstæðri atvinnu á þann hátt að slá sér saman um fyrirtæki, þá fá þeir það ekki. Ef t.d. sjómenn vilja fá að kaupa bát í þessu skyni, þá kemur gjaldeyris- og innflutningsn. til skjalanna og Sjálfstfl. og neita um leyfi til þess að flytja slíka báta inn eða efni til þeirra. Ef menn vilja koma sér upp atvinnu við iðnað, þá er sama svarið: „Nei, góði, þú færð ekki þetta, því að það standa ákveðnir framsóknar- og sjáifstæðismenn nær því að fá þetta heldur en þið. Þið fáið þetta ekki.“ Og þó að það eigi að liggja verksmiðju, sem veitt gæti hundruðum manna atvinnu, og þó að búið sé að fá hagfellt lán til hennar, og þó að bygging hennar krefji engan erlendan gjaldeyri, þá fæst ekki að koma upp þessu atvinnufyrirtæki. Nei, atvinnufyrirtækin eiga aðeins að vera fyrir Kveldúlf og Alliance. Hér er hverjum manni í landinu bannað að bjarga sér, sem ekki tilheyrir vissum hópi manna. Og þegar á sama tíma er svo skorinn niður styrkurinn til landbúnaðarins, þá virðist nú valdaklíkan vera farin að færa sig nokkuð mikið upp á skaftið.

Það er þess vegna auðséð í sambandi við þær till., sem fyrir liggja hér um verklegu framkvæmdirnar í landinu, að ríkisstj. og hennar fl. eru beinlínis að stefna að því með allri sinni pólitík að koma meginþorra þjóðarinnar á vonarvöl, til þess að atvinnurekendurnir geti pískað verkalýðinn til að vinna fyrir hvaða kaup sem þeim þóknast. Það er þannig verið að reyna að brjóta verkalýðssamtökin á bak aftur. Það á að skapa verkalýðnum þau sultarkjör, að hann verði að sækja helzt allt til stærstu svindlaranna í landinu, — til þeirra manna, sem sölsað hafa undir sig atvinnufyrirtækin og fjármagnið í landinu.

við þm. Sósíalistafl. munum flytja till. um aukningu á framlaginu til atvinnubóta.

Ég skal svo aðeins gera lítilsháttar að umtalsefni till. hv. fjvn. Það er auðséð, að fjvn. finnst, að þegar þeir gæðingar, sem hæstv. fjmrh. sérstaklega hefir haft í huga, væru búnir að fá sitt, þá væri ekki þörf á því að hugsa um alla þal, sem sitja eftir í bönnuðum kjallaraíbúðum, og þess vegna mætti skera meira niður framlagið til verkamannabústaða heldur en gert hefir verið áður.

Svo er að síðustu till., sem er veigamest af þeim, sem hv. fjvn. flytur, till. um að heimila ríkisstj. að skera niður hin ólögbundnu útgjöld um allt að 35%. Hv. frsm. fjvn, skýrði frá því alveg réttilega, að þessar ólögbundnu greiðslur væru í 13. og 16. gr. fjárl. Þetta mundi þýða niðurskurð um 13/4 millj. kr. af verklegu framkvæmdunum í landinu. Með þessari heimild er verið að gefa ríkisstj. einræðisvald að því er snertir verklegu framkvæmdirnar í landinu. Og það er auðséð, hver er hugur hv. fjvn. og stjfl. til verklegu framkvæmdanna í landinu, þegar þeir vilja veita heimild til þess að láta skera þær niður um 35%, en snerta ekki við nokkrum sköpuðum hlut öðrum. Það hefði alveg eins mátt samþ. sérstök heimildari. fyrir ríkisstj. til þess að skera niður svo eða svo mikil hálaun í landinu eða leggja sérstakan skatt á hálaun, þannig að þegar þau komast upp yfir eitthvert ákveðið hámark, yrðu þau öll tekin. Það hefði líka mátt setja sérstakan skatt til þess að taka stríðsgróða, til þess að það megi nota hann til þess að bæta upp þá gjaldaliði, sem ella yrðu undir áætlun. En engu af þessu vill hv. fjvn. snerta við.

Hv. frsm. fjvn. sagði, að það hefði verið nokkuð langt gengið að gefa ríkisstj., sem væri hrein flokksstjórn, svona heimild. Já, ég býst satt að segja við, að það sé nú sjaldgæft, að einstakir pólitískir fl. séu eins samábyrgir og standi eins vei saman um samskonar svívirðingar í garð alþýðunnar eins og þessir þjóðstjórnarfl., sem hér hafa myndað ríkisstj. Ég sé ekki betur heldur en það megi einmitt telja þessa ríkisstj., sem nú situr að völdum, einhverja hreinustu flokksstjórn þannig séð, sem lengi hefir setið við völd, nefnilega flokksstjórn Kveldúlfsflokksins, togaraeigendanna og bitlingamannanna í landinu. Því að ég sé ekki betur en að hvert einasta stefnumál, sem fl. áður stóðu að, sé algerlega gleymt, en heldur sé það aðeins eitt, sem vakir fyrir ríkisstjórninni, að vernda Kveldúlf og togaraeigendurna. Stríðsgróða manna má ekki skerða né hreyfa við bitlingunum, hvað sem það kostar þjóðina.

Ég hefi nú rakið það, sem við þm. Sósíalislafl. höfum sérstaklega út á fjárlagafrv. að setja, og þær till., sem hér liggja fyrir. við munum við 3. umr. gera okkar brtt. við frv., þó að ég hinsvegar, að fenginni reynslu, gangi út frá því, að það muni lítil áhrif hafa á þjóðstjórnina eða afgreiðslu þessa fjárlagafrv. Það er þess vegna vitanlegt, að fjárl., eins og flest önnur mál, sem afgr. eru hér á þingi, eru ekki afgr. nema að nafninu til hér í hæstv. Alþ. sjálfu, heldur á flokksfundum og með baktjaldamakki, og þá einnig af öðrum valdhöfum en þm. Og þm. eru þess vegna í raun og veru næstum því eins og, að leggja niður sitt starf sem löggjafar og ekki orðnir nema eins og peð í höndunum á framkvæmdavaldinu í landinu. Og slíkt er vitanlega hjá einu þjóðþingi að stefna beint í áttina til sjálfsmorðs.