26.03.1940
Efri deild: 21. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 259 í B-deild Alþingistíðinda. (462)
55. mál, síldartunnur
Frsm. (Ingvar Pálmason):
Um þetta frv. er ekki margt að segja. Það stendur eins á með þetta frv. eins og það, sem var til umr. næst á undan, að það er komið frá Nd. og var flutt af sjútvn. þeirrar d.
Það, sem farið er fram á í þessu frv., er að ákveða nokkru nánar stærðina á síldartunnum en áður hefir verið gert. Er það aðalatriði frv., sem kemur fram í 1. gr. Það hefir borið nokkuð í afleiðingum þess, að stærðin á síldartunnum hefir ekki verið nákvæmlega ákveðin. Í grg., sem fylgir frv., eru færð allýtarleg rök fyrir því, að nauðsynlegt sé að ákveða þetta nánar. Það hefir viljað eiga sér stað á undanförnum árum, að þær tunnur, sem síld hefir verið söltuð í, hafa ekki allar verið af sömu stærð, og getur það valdið nokkurri óánægju hjá kaupendum, og þegar síldin er orðin jafnmikill liður í útflutningi frá Íslandi sem nú er, virðist vera sjáifsagður hlutur að reyna að tryggja það, að hinir mörgu kaupendur hafi ekki ástæðu til að óttast, að innihald hverrar tunnu sé ekki eins mikið og það er sagt vera.
Sjútvn. Ed. mælir eindregið með því, að þetta frv. verði samþ. eins og það liggur fyrir.