26.03.1940
Efri deild: 21. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 263 í B-deild Alþingistíðinda. (485)
50. mál, bann gegn jarðraski
Frsm. (Þorsteinn Þorsteinsson) Ég skal ekki teygja lopann lengi um þetta mál. Ég vil aðeins benda á, að þó að l. um náttúrufriðun séu samin, þá er ekki víst, að þau nái sérstaklega til þess, sem þessu frv. er ætlað að ná til. Það getur verið, að hús sé byggt og þá sé með grefti fullmikið gengið á ræktaða nytjabletti þar nálægt, sem talið er að þurfi að friða almennt með l., að ekki sé um of á þá gengið. Þetta finnst mér, að ekki heyri undir l. þau, sem kæmu fram sem náttúrufriðunarlög.
Ég held því, að ekkert sé skemmt fyrir lagabálki, sem kann að koma um náttúrufriðun, þó þetta frv. sé samþ.