08.03.1940
Neðri deild: 13. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 264 í B-deild Alþingistíðinda. (491)

51. mál, lax- og silungsveiði

Flm. (Pétur Ottesen):

Með breyt., sem gerð var á I. um lax og silungsveiði i936, átti að lagfæra þá ágalla, sem komið höfðu í ljós á löggjöfinni frá 1932, að því er snertir veiði í ósum og á leirum, en nú hefir reynslan sýnt, að þessi breyt. 1. 1936 hefir ekki í framkvæmd náð þeim tilgangi, sem henni var ætlað að ná. Hér er því aðeins farið fram á að breyta orðalagi lagunna hvað þetta snertir, til þess að fyrirbyggja þá erfiðleika, sem orðið hafa vegna hins óskýra orðalags á núgildandi löggjöf um þetta efni. Þar sem því hér er aðeins um leiðréttingu á orðalagi að ræða, sé ég ekki ástæðu til að fjölyrða frekar um þetta atriði, og óska aðeins, að frv. nái sem fyrst fram að ganga. Að umr. lokinni óska ég málinu vísað til 2. umr. og landbn.