16.03.1940
Neðri deild: 19. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 266 í B-deild Alþingistíðinda. (498)
51. mál, lax- og silungsveiði
Pálmi Hannesson:
Ég vil leyfa mér að vara hv. þd. við þessu ákvæði, sem í brtt. hv. þm. Mýr. felst og hv. þm. hefir slengt hér inn á mjög vingjarnlegan hátt að vísu, af því að það felur í sér hvorki meira né minna en það, að snúa upp og niður þeim ákvæðum, sem laxveiðilöggjöfin nú grundvallast á. Höfuðatriði þeirrar löggjafar er, að lax skuli aðeins heimilt að veiða í vatnsföllum landsins, en ekki í sjó. Þegar i. voru samþ., var að vísu gengið svo langt að heimila þá veiði, sem hafði verið viðurkennd sem hlunnindi við jarðamatið 1931, þannig að menn misstu ekki þann rétt í þessu efni, sem þeir höfðu haft og beinlínis var talinn með í mati á þeirra fasteignum. Þegar 1. voru undirbúin, var fyrst miðað við matið 1922, og þá höfðu 4 jarðir talið til hlunninda laxveiði í sjó. Þetta var ekki til mikils skaða. En því var breytt og miðað við matið, sem gert var 1931 eða '32. Og á meðan l. voru í undirbúningi höfðu nokkrir bændur séð sér færi á því að koma inn í fasteignamatið veiðihlunnindum í sjó. Þetta var ekki heldur til mikils skaða. En hér er lagt til að höggva miklu stærra skarð í laxveiðilöggjöfina, þar sem er till. um að leyfa að leggja laxanet í sjó hvar sem er í kringum allar strendur landsins. Það er að vísu sagt, að það eigi að leggja þau á þurrt. En þó að þetta líti sakieysislega út hvað orðalag snertir, þá vil ég nú spyrja: Hver ráð eru til þess að líta eftir því að það verði ekki brotið, ef þetta væri samþ., og að ekki verði notuð ólögleg veiðarfæri, svo sem króknet eða kálfanet? Það hefir valdið geysimiklum örðugleikum að halda uppi laxveiðilöggjöfinni eins og hún er nú. Og hvað mundi þá verða, ef þetta ákvæði væri samþ. Þeir örðugleikar mundu áreiðanlega marfaldast.
Auðvitað mundi þetta ákvæði, ef samþ. væri, ná fyrst og fremst til þeirra manna, sem eiga lönd nálægt ósum veiðivatna, t.d. í Borarfirði. Hv. flm. segir, að þó að þeir veiði eina og eina laxkind, þá sjái ekki svo mikið á lasveiði í ám fyrir það. En hins hv. kjósendur á laxveiðijörðunum upp með ánum veiða barst ekki þær laxkindur, sem búið er að veiða í sjó.
Hvorir eiga laxinn, þeir, sem búa við árnar, eða þeir, sem búa við sjó? við samþ. laxveiðilöggjafarinnar var álitið, að þeir, sem búa við árnar, eigi laxinn.
Hv. þm. talaði um stjskr., eins og mönnum er nú mjög orðið títt, og taldi, að mjög nærri mundi vera höggvið ákvæðum hennar með laxveiðilöggjöfinni, sem nú gildir, gagnvart þeim mönnum, sem við sjó bíta. En er þá ekki jafnnærri höggvið ákvæðum hennar með því að fara með kálfanætur fyrir utan þær netalagnir, sem l. leyfa? Þar er þó ekki nema örlítill stigmunur frá þessu ákvæði. Og ef ætti að fara að ganga þá braut, sem felst í till. hv. þm. Mýr., þá yrði skammt þess að bíða, að það kæmi nýr fleygur við þessa löggjöf, sem ferli í sér að gera laxveiði í sjó meira eða minna heimila. Þetta ákvæði, sem hv. þm. Mýr. ber hér fram, yrði þá bara byrjun, þannig að þá kæmu fram fleiri eða færri till. í sömu átt á eftir, sem gengju lengra í því að heimila laxveiði í sjó.
Það er ekki svo að skilja, að með laxveiðil. hafi neinn misst réttindi. Þeir, sem töldu fram til hlunninda laxveiði í sjó, hafa fengið að halda réttinum til þeirrar veiði, ég vil segja því miður um marga þeirra. En hinsvegar sé ég enga ástæðu til þess að fara að gefa mönnum heimild til þess að hafa net fyrir löndum sínum út með sjávarströndum og taka þannig lax á þeim stöðum, þar sem það fer saman, að erfitt er að líta eftir, að l. séu ekki brotin yfirleitt vegna aðstöðunnar, og einnig hitt, að það er óeðlilegt, að lax sé veiddur þar.
Hv. þm. Mýr. talaði um, að við gætum með jafngóðri samvizku sagt Engiendingum, að ekki væri veiddur las í sjó, þó að þetta ákvæði væri samþ. En Engiendingar hafa ekki svo liðuga samvizku né trúgirni til að trúa því. Og þetta ákvæði, ef samþ. væri, væri metanlegt í sterlingspundum þegar hingað koma Englendingar til að leigja árnar í Mýrasýslu og annarstaðar á landinu. Engiendingum er það geysimikið atriði að vita, að ekki sé veiddur lax í sjó, heldur aðeins í ám. Þeir eru meira að segja með ýmsar fyrirspurnir út af laxveiðlákvæðunum, sem leyfa nú, að lax sé veiddur við strendur landsins. Og ef hér væri lengra gengið, mundi það draga úr þeim áhuga, sem óneitanlega er vaknaður hjá þeim fyrir íslenzkum veiðlám, sem ekki sízt er afleiðing laxveiðilöggjafarinnar, vil ég segja.
Ég tel mjög hættulegt að samþ. þessa sakleysislegu, en eitruðu till. hv. þm. Mýr.