26.03.1940
Efri deild: 21. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 270 í B-deild Alþingistíðinda. (505)
51. mál, lax- og silungsveiði
Fram. (Erlendur Þorsteinsson):
Herra forseti! Ég get verið stuttorður um þetta frv. Það hefir komið í ljós við framkvæmd l. um lax- og silungsveiði, að ákvæðið í l. um laxveiði í ósum er ekki fullnægjandi eins og það er nú. Þess vegna hafa 2 hv. þm. í Nd. borið fram frv. það, sem hér liggur fyrir, sem er um það, að ekki megi girða fyrir aðalstraumlínuál og ekki lengra en út í miðjan höfuðál ósa.
Landbn. hefir athugað þetta frv. og mælir með því, að það verði samþ. óbreytt.