29.03.1940
Efri deild: 24. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 274 í B-deild Alþingistíðinda. (527)
11. mál, vitabyggingar
*Frsm. (Ingvar Pálmason):
Breytingin, sem lagt er til, að gerð verði á núgildandi i. um vitamál, er sú, að ákvæði skuli sett í l. sjálf, þar sem svo er fyrir mælt, að jafnan skuli verja árlega jafnmiklu fé til vitamála og vitagjöldin nema. Ég geri ráð fyrir, að frv. sé komið fram vegna vaxandi krafa frá sjómönnum um þetta. Við þessu er að sjálfsögðu ekkert að segja, slík krafa sem þessi er í fyllsta máta eðlileg.
Í meðferð frv. í hv. Nd. voru gerðar á því tvær breytingar. Fyrri breytingin er við 7. gr. l. og er þess efnis, að auk forstöðumanus stýrimannaskólans skuli og leita álits forseta Fiskifélagsins og forseta Farmanna- og fiskimannasambands Íslands, áður en ákveðið er, hvaða vitar skuli byggðir. Þessa breyt. verður að telja sanngjarna. Þá var og bætt inn í frv. í Nd., að auk þeirra ljósvita, sem taldir eru í lögunum, skuli bætt ljósvita á Arnarstapa á Snæfellsnesi. Um þessa breyt. er hið sama að segja og hina, að hún á að sjálfsögðu fyllsta rétt á sér, því að það er ekkert eðlilegra en að bæta þurfi nýjum vitum inn í l. um vitabyggingar, umfram þá, sem taldir eru í l. frá 1933.
Í 4. gr. frv. er svo ákveðið, að I. þessi komi ekki til framkvæmda á meðan styrjöld sú, sem nú er hafin í Norðurálfu, standi yfir. Það mætti því segja, að ekki væri brýn nauðsyn á að afgreiða mál þetta nú, en ég fæ ekki séð, að neitt geti verið því til fyrirstöðu. Þörf og góð mál er alltaf tímabært að afgreiða. Ég tel því ástæðulaust að láta það tefja framgang þessa máls, þó að það eigi ekki að koma til framkvæmda á meðan ófriðurinn geisar.
Breyt. þær, sem gerðar voru á frv. í Nd., geta að sjálfsögðu komið til framkvæmda strax, a.m.k. fyrra atriðið. vitabyggingin á Arnarstapa kann ef til vili að þurfa að bíða eitthvað.
Um þetta er sjútvn. allt sammála og leggur því til, að frv. verði samþ.