14.03.1940
Neðri deild: 17. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 279 í B-deild Alþingistíðinda. (537)

12. mál, tilraunir í þágu landbúnaðarins

Frsm. (Steingrímur Steinþórsson):

Út af fyrirspurn hv. þm. V.-Húnv. um kostnaðinn við þá breyt., sem hér er ráðgerð á skipulagi tilraunastarfseminnar, vil ég taka það fram, að það var gerð grein fyrir þessu í nál., sem fylgdi frv. upphaflega, nákvæmlega hver kostnaðurinn yrði. Kostnaður þarf ekki að vaxa neitt fyrstu árin. Hefir Alþingi það alveg í hendi sér, hversu mikið fé til þessa er varið. Nú hafa verið tvær tilraunastöðvar í jarðrækt, sem hafa styrk úr ríkissjóði, og það er ætlazt til þess, að þær haldi áfram. Í öðru lagi er svo byrjað með fóðrunartilraunir við landbúnaðardeild háskólans, og það er einnig byrjað á að setja á stað tilraunir á skólabúum bændaskólanna, sem ætlazt er til, að hafi þær með höndum framvegis. Svo það er alveg á valdi Alþ., hvort fé er veitt til þessa eða ekki.

Tilraunaráð eiga ekkert að kosta; Það á að vera ólaunað starf, nema smávægilegur ferðakostnaður vegna fundahalda; annan kostnað á ekki af því að leiða. Hitt er annað mál, að með tíð og tíma getur þetta haft aukinn kostnað í för með sér, ef gerðar yrðu auknar tilraunir, en það er að sjálfsögðu á valdi Alþingis að ákveða slíkt í hvert sinn.

Það er rétt, að í brtt. á þskj. 104 hefir orðið misritun eða prentvilla, eins og hv. síðasti ræðumaður benti á. Þetta vil ég biðja hæstv. forseta að athuga við atkvgr.