14.03.1940
Neðri deild: 17. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 279 í B-deild Alþingistíðinda. (538)

12. mál, tilraunir í þágu landbúnaðarins

Thor Thors:

Eftir að frv. það, sem hér er til umr., var borið fram, hefir komið fram frv. um náttúrurannsóknir, þar sem verkefni þessa frv. er að nokkru lyti tekið til meðferðar, ásamt öðrum rannsóknum. Ég vildi því mælast til eið hv. landbn., að hún athugi fyrir 3. umr., hvort ákvæði þessara tveggja frv. rekist hvergi á. Fljótt á litið virðist mér t.d. nauðsynlegt að sameina 2. kafla þessa frv. og 3. kafla frv. um náttúrurannsóknir, þar sem lagt er til, að nafni þessarar stofnunar verði breytt. Þá er það og ennfremur, að mér virðist, að búnaðardeildin, eins og hún þar er nefnd, eigi að hafa með höndum fleiri rannsóknarefni en landbúnaðardeildin, sem svo er kölluð í þessu frv. Til þess að hér verði ekki um árekstur að ræða í þessu tilfelli, vil ég mælast til þess, að hv. landbn. taki þetta til athugunar og hafi um það samvinnu við allshn.