16.03.1940
Neðri deild: 19. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 294 í B-deild Alþingistíðinda. (636)
58. mál, náttúrurannsóknir
Frsm. (Thor Thors):
Allshn. hefir orðið sammála um að leggja til, að þetta frv. verði samþ. með nokkrum smávægilegum breyt. Aðalefni frv. felst nú í gildandi 1. En í i. kafla þess eru nokkur almenn ákvæði, sem ekki hafa áður verið lögfest og eru til mikilla bóta. Um leið og ég vísa til grg. frv. vil ég mælast til þess, að frv. verði samþ. með þeim breyt., sem allshn. leggur til.