04.04.1940
Sameinað þing: 13. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 104 í B-deild Alþingistíðinda. (64)
1. mál, fjárlög 1941
Páll Zóphóníasson:
Herra forseti! Ég á hér einungis eina brtt., ásamt nokkrum öðrum hv. þm., og hún er svo sjálfsögð, að ég þarf lítið fyrir henni að tala. vænti ég, að þegar hv. fjvn. Hefir athugað hana endanlega, þá sjái hún, að þetta er ekki annað en leiðrétting, og muni þá mæla með henni. Þessi brtt. er á þskj. 327 og gengur út á það að ætla þeim mönnum, sem tjón hafa beðið af völdum garnaveikinnar, samskonar aðstoð og þeim, sem eru undir barðinu á mæðiveikinni.
Eins og allir hv. þm. muna, voru á síðasti. hausti samþ. 1., sem ætluðust til þess, að reynt yrði hvorttveggja, að vinna bug á útbreiðsla garnaveikinnar og aðstoða þá bændur, sem hefðu af hennar völdum orðið fyrir tjóni. Þessi l. voru samþ. svo seint á þinginu, að ekki kom nein fjárveiting í fjári. til þessara framkvæmda, enda þarf ekki nema litla fjárupphæð til þeirra á yfirstandandi ári, en á næsta ári þarf dálítið fé til þeirra, og þess vegna þótti okkur sjálfsagt að ætla þetta fé til þess. Með tilliti til þess, að mæðiveikin er búin að vera það lengi á döfinni, að hún er víða í rénun, þá fannst okkur ekki ástæða til að auka liðinn í heild. en taka fram, að honum skyldi varið til þessa hvorstveggja. hað kaun að vera, að einhverjir standi í þeirri meiningu, að liðurinn í heild þurfi að vera hærri, og geri ég þá ráð fyrir, að þeir sömu menn flytji um það brtt., en vitanlega á þetta fé að ganga til beggja aðila jafnt, eins og l. gera ráð fyrir. Ég vona, að liðurinn verði samþ. undir öllum kringumstæðum, og þótt hann yrði hækkaður, þá myndi ég ekki mæla gegn þeirri till., ef hún er á rökum byggð.
Þá vil ég þakka fjvn., að hún hefir séð sér fært að verða við ósk minni um að ætla fé til vegagerðar í vopnafirði, eins og ég óskaði eftir við 2. umr. að öðru leyti skal ég ekki eyða tíma hér, en mun við atkvgr. sína afstöðu mína til hinna einstöku till.