01.04.1940
Efri deild: 26. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 295 í B-deild Alþingistíðinda. (644)
58. mál, náttúrurannsóknir
Frsm. (Ingvar Pálmason):
Frv. þetta var flutt í hv. Nd. að tilhlutun atvmrh., og er í grg. fyrir frv. skýrt frá efni þess og ástæðunni til þess að það er flutt. Tilefnið til þess, að frv. þetta er flutt, er í fyrsta lagi það, að nauðsyn þótti til bera að færa í eina heild þau ákvæði, sem um þetta eru, og að lögákveða þá rannsóknarnefnd, sem skipuð var á síðasta þingi, og gera nokkru fyllri ákvarðanir um störf hennar. Ég held ekki, að það hafi nokkurstaðar komið fram nein andmæli gegn þessu frv., hvorki hér eða í Nd., og breytingar á því voru mjög litlar í Nd., a.m.k. sem máli skiptu um efni. Það hefir að vísu verið skipt um nafn á rannsóknarnefndinni, og er hún í frv. eins og það er nú kölluð rannsóknaráð, og var það allshn. Nd., sem færði þau rök fram, að orðið rannsóknarnefnd væri búið að fá þann skilning í málinu, að það væri nefnd, sem hefði með höndum rannsókn sakamála. Ég skal nú ekki ræða neitt um það álit. Ég tel sama, hvort nafnið er notað, nefnd eða ráð, og sá nefndin ekki neina ástæðu til að gera breyt. við það, en n. þótti rétt að gera brtt. við 2. gr. frv., þar sem rætt er um heimild fyrir ríkisstj. til þess að veita erlendum fræðimönnum leyfi til að stunda rannsóknir hér. Enda þótt n. telji ekki líklegt, að stjórnin mundi fara á bak við rannsóknaráð, þótti henni rétt, að slíkar heimildir skyldu verða veittar erlendum mönnum aðeins að fengnum tillögum rannsóknaráðs. Ég held, að allir verði að kannast við, að það er mikil nauðsyn á því að ganga svo tryggilega frá því atriði sem unnt er, að útlendingar hafi ekki með höndum náttúrurannsóknir hér á landi nema undir eftirliti innlendra fræðimanna, og þess vegna virðist n. leiða af sjálfu sér, að þegar slík leyfi séu veitt, verði þau ekki veitt nema í samráði við rannsóknarráð.
Að öðru leyti er ekki fleira um þetta frv. að segja, og leggur n. til, að það verði samþ. með þessari einu breytingu.