08.03.1940
Efri deild: 13. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 298 í B-deild Alþingistíðinda. (657)

30. mál, erfðaábúð og óðalsréttur

Frsm. (Páll Zóphóníasson):

Herra forseti! N. hefir athugað frv. það, sem hér liggur fyrir, og mælir með, að það verði samþ. En hún hefir leyft sér að bera fram breyt. við það, sem feist í brtt. á þskj. 67. Skal ég nú gera grein fyrir henni. Samkv. frv. er ætlazt til, að fasteignamat sé lagt til grundallar við lántökur til húsabygginga á erfðafestujörðum. Þetta telur n. ekki heppilegt, m.a. vegna þess, að oft þurfa ábúendur að fá lán til húsabygginga, áður en fasteignamat liggur fyrir. Nú eru slík íbúðarhús reist eftir teikningu frá teiknistofu landbúnaðarins, og þar liggur því fyrir kostnaðaráætlun um byggingu þeirra. Lánin eru veitt úr byggingar- og landnámssjóði og ræktunarsjóði, og þeir menn, sem á teiknistofunni vinna, gætu sagt til um, hvað húsið myndi kosta. Þess vegna fannst okkur liggja beinna við, að leitað væri álits teiknistofunnar í þessum efnum, svo það gæti líka komið til greina að veita lán, þó að ekki lægi fyrir fasteignamat.

Í frumv. er gert ráð fyrir, að úttektarmenn hreppanna ákveði, hvort húsin séu nauðsynleg fyrir búrekstur á jörðinni, en í brtt. n. ætlar hún þetta trúnaðarmönnum ræktunarsjóðs. Nú er svo, að trúnaðarmenn ræktunarsjóðs þurfa að segja álit sitt á húsinu til þess að bankinn veiti lánið. Okkur þótti þess vegna heppilegra að láta þá menn, sem þyrftu að koma á staðinn hvort sem var, ákveða þetta, heldur en þurfa að kveðja aðra menn til þess. Þetta á að gera mönnum léttara að undirbúa lántökuskilyrðin heldur en á þann hátt, sem frv. gerir ráð fyrir. Það hefir dálítið verið talað um, að þessi lán næðu aðeins til íbúðarhúsa. Ákvæði um það hefir þó ekki verið sett þarna inn, en gengið út frá því, að fyrst og fremst sé um íbúðarhús að ræða. Náttúrlega er ekki útilokað, að önnur hús geti komið til greina, en búizt er við, að þau verði látin sitja á hakanum.

Ég skal svo ekki orðlengja þetta frekar, en mæli með því, að þessi brtt. verði samþ., svo og frv. sjálft.