30.03.1940
Neðri deild: 26. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 300 í B-deild Alþingistíðinda. (666)
30. mál, erfðaábúð og óðalsréttur
Frsm. (Steingrímur Steinþórsson):
Þetta litla frv. er komið frá hv. Ed., en landbn. þessarar hv. d. hefir haft það til meðferðar og mælir með því, að það verði samþ. Ég get þess, að breyting sú, er frv. fer fram á, að gerð verði á 1. um erfðaábúð og óðalsrétt, er fólgin í því, að ábúendum á erfðafestujörðum leyfist að veðsetja 25% af fasteignamatsverði húsa þeirra á jörðinni, sem þeir eiga sjálfir, auk þeirra 50% af fasteignamatsverði landsins, sem um getur í l. Það hefir sem sé komið í ljós, að menn, sem verða að byggja á jörðinni — en það verða þessir ábúendur yfirleitt að gera —, eiga mjög örðugt með að koma þar upp byggingum, þótt ekki séu gerðar til þeirra hærri kröfur en að þær séu rétt nothæfar. Hér er ekki farið fram á nema ein 25%, og verður að telja það mjög væga og sanngjarna kröfu.
Landbn. mælir með, að frv. verði samþ., svo langt sem það nær, en hefir gert við það brtt., sem eru á þskj. 271. Að vísu stendur í nál., að n. hafi ætlað sér að bera fram þessar brtt. við 3. umr., en úr því þær eru komnar fram nú, er rétt að afgr. þær strax. Þessar brtt. eru við 2. kafla l., sem fjalar um ættaróðul. Þetta er í samræmi við gildandi ákvæði um þessi efni, og landbn. fannst rétt að samræma þetta nú. Af þeirri ástæðu hefir hún borið fram þessar 2 brtt. Sú fyrri er við 10. gr. l., en þar segir svo, að ekki megi hvíla hærri veðskuld á ættaróðali heldur en svo, að árlegir vextir af þeim nemi 3% af fasteignamatsverði jarðarinnar. Landbn. leggur til, að vextirnir verði hækkaðir upp í 4%. Í 20. gr. þessara l. er ákveðið svo að orði, að óðalsbónda verði heimilað að taka lán, en lán, sem þannig hvíla á ættaróðulum, megi aldrei nema hærri upphæð en 100% af fasteignamatsverði, og aldrei yfir 50% af heildarmatsverði óðalsins. N. leggur til. að í stað 50% komi 75%. Með þessum tveim brtt. leggur landbn, til, að frv. verði samþ.
Ég skal svo að lokum geta þess, að því hefir verið skotið að mér af einum fulltrúa úr ráðuneytinu, að háttar breyt. þurfi að gera á þessu frv., en það mun verða látið bíða til 3. umr. Ég vil fyrir mitt leyti leggja áherzlu á, að þetta frv. verði afgr. á þessu þingi. Nokkrir menn hafa byggt á þessum jörðum á síðustu árum, og þeir eru í miklum vandræðum með að standa straum af byggingarkostnaðinum, vegna takmarkana í þessum lögum.