28.03.1940
Neðri deild: 24. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 302 í B-deild Alþingistíðinda. (681)

72. mál, fýlasótt

Frsm. (Vilmundur Jónsson):

N. hefir athugað þetta frv. og leggur til, að það verði samþ. óbreytt.

Ég skal geta þess, að síðan 1. umr. fór fram, hafa borizt fregnir frá Færeyjum um árangur af sóttvarnarráðstöfunum, sem þar hafa verið gerðar gegn þessari veiki. Þær eru í stuttu máli þannig, að við veikina, sem hefir stungið sér niður í Færeyjum meira og minna á hverju ári síðan 1930, varð ekkert vart á síðasti. ári, en þá var fýlungatekja í fyrsta skipti bönnuð þar með öllu. Hinsvegar hefir aldrei borið á þessari veiki í sambandi við fullorðinn fýl, enda voru fullorðnir fýlar veiddir í Færeyjum á síðastl. ári og kom ekki að sök. Það virðist því munu vera nægilegt að banna hér fylungatekju, en leyfa veiði fullorðna fuglsins, vetrarfýlsins. verður þá jafnframt minni atvinnumissir fyrir menn af þessum ráðstöfunum.