04.04.1940
Sameinað þing: 13. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 111 í B-deild Alþingistíðinda. (69)
1. mál, fjárlög 1941
*Atvmrh. (Ólafur Thors):
Ég mun ekki gera fjárlögin eins og þau liggja fyrir að umtalsefni, heldur aðeins leyfa mér að visa til ræðu hæstv. fjmrh.
Það eru örfáar till. af þeim, sem hér liggja fyrir, sem ég tel mér skylt að minnast á með nokkrum orðum. Ég vil þá fyrst leyfa mér að þakka hv. fjvn. fyrir þrjár af þeim till., sem hún hefir flutt á þskj. 272. Það er fyrst 12. till., sem er við 13. gr., sem er um það, að lagðar verði fram sem 1. greiðsla af 9 10 þús. kr. til dýpkunar á Raufarhöfn. Eins og kunnugt er, er þess vænzt, að næsta sumar verði reist á Raufarhöfn verksmiðja, sem á að geta unnið úr 5 þús. málum á dag. Þarna er lítil verksmiðja, sem getur unnið úr 1200 málum. Það er vitað, að ef ný verksmiðja á þessum stað á að koma að gagni, þarf að dýpka höfnina, svo að stærri skip geti komizt þar að heldur en nú er. Til þess að það megi verða, þarf að gera hafnarbætur á Raufarhöfn, sem áætlað er, að muni kosta nokkuð á þriðja hundrað þús. kr. Framlag ríkissjóðs í þessu sambandi ætti að verða um 90 þús. kr., til þess að ríkissjóður fullnægi gagnvart Raufarhöfn þeim ákvæðum, sem hafa verið sett almennt á síðustu árum um hafnargerðir. Nú hefir n. með þessari till. lagt til, að svo verði, og vænti ég, að Alþ. samþ. þetta. Má svo gera ráð fyrir, að stj. verksmiðjanna hafi forgöngu um að afla lánsfjár í þessu skyni, annarsvegar til að standast þann kostnað, sem hreppurinn á að hafa, og hinsvegar til þess að nú þegar verði hægt að leggja fram það fé, sem ríkið fyrir sitt leyti með samþykkt þessarar till. tekur að sér að inna af hendi á níu árum.
Þá vil ég næst minnast á 37. till. n., sem er um það, að ríkissjóður greiði til rannsóknarráðs 30 þús. kr. á árinu 1941. Ég tel þegar fengna reynslu fyrir, að starfsemi þessa rannsóknarráðs sé svo mikilvæg, að ríkinu beri að standa undir þeim kostnaði, sem af þeirri starfsemi leiðir. Ég hafði haldið, að rétt væri að hafa þessa upphæð nokkru hærri, en tel þó ekki ástæðu til að gera brtt. þar um, í fullu trausti þess, að Alþingi samþ., að stj. sé heimilt að inna af hendi þær greiðslur, sem reynslan sýnir að verða nauðsynlegar, eftir því sem atvik standa til.
Þá er það loks b.-liður 69. till. á sama þskj., um að veita 100 þús. kr. ábyrgð vegna hafnargerðar í Njarðvík. Það verður að vísu að játa, að enn liggur ekki fyrir full rannsókn um höfn á Suðurnesjum, hvort hún skuli verða í Njarðvik, en ég geri ráð fyrir, að áður en kemur fram á sumar, verði aðstaða til þess að dæma um með meira öryggi, hvort höfnin skuli vera þar eða annarstaðar. Ég geri ráð fyrir, að stj. muni ekki leggja í þessar framkvæmdir, jafnmikilvægar og þær eru og kostnaðarfrekar og jafnörlagaríkar —afleiðingar og þær geta haft, nema fullkomið öryggi sé fyrir í þessum efnum. Ég get hugsað mér, að þessi fjárveiting komi ekki til hagnýtingar á þessu sumri, því að mér er ljóst, að hún gildir ekki fyrr en árið 1941, en þrátt fyrir það er ég þakklátur hv. fjvn., því að með þessari till. hefir hún viðurkennt nauðsyn þess, að það opinbera leggi fram verulegan fjárstyrk til þess að koma upp bátahöfn við Faxaflóa, og þá einmitt á Suðurnesjum, og ég skil till. þannig, að þótt nefnd sé sérstaklega Njarðvík, þá sé meiningin sú hjá n., að stj. megi nota þessa heimild þar, sem hún álítur, að fenginni umsögn þar til hæfra manna, og þá fyrst og fremst vitamálastjóra og hafnarverkfræðinga, að réttast sé og heppilegast að byggja slíka höfn.
Þá er það næst 1. brtt. á þskj. 333, sem þeir flytja, hv. þm. v.-Húnv. og þm. 1. þm. Skagf., að hækka framlag til flugmála úr 20 þús. í 30 þús. kr. Ég vil leyfa mér að skýra Alþ. frá því, að þessa brtt. hafði ég hugsað mér að flytja og hafði þegar leitað til þess samþykkis tveggja af ráðh., en hafði ekki haft tal af hinum.
Mér þótti því vænt um, þegar mér barst til eyrna, að von væri á slíkri till. frá þessum hv. þm. Ég vil leyfa mér að mælast til þess, að þingið samþ. þessa till., með þeim rökum, að ef ekki verður varið til flugmála meiru en 20 þús., verða áreiðanlega mikil vanefni á því að halda uppi allra nauðsynlegustu starfsemi á þessu sviði. Af þessum 20 þús. mun Flugfélag Akureyrar fyrrv., sem nú heitir Flugfélag Íslands, fá helminginn, samkv. loforði frá fyrrv. atvmrh., 1. flm. þessarar brtt. Er þá ekki eftir nema 10 þús. til allrar annarar flugstarfsemi, sem er vitanlega á engan hátt fullnægjandi, þó að ýtrustu sparsemi sé gætt.
Ég vil benda þinginu á, að nokkrar líkur eru á, að nauður reki til að nú á þessu sumri verði að taka eignarnámi land suður við Skerjafjörð, sem að dómi fagmanna verður að teljast eftir atvikum bezti flugvöllur í nágrenni Reykjavíkur, miðað við framtíðarþörf. Ég hirði ekki að rekja það mál hér, en vil aðeins benda á, að þetta getur komið til, og hefir það þá vitanlega fjárútlát í för með sér, sem Alþ. yrði þá á sínum tíma að taka upp á fjáraukalög. Þessi till. felur í sér viðurkenningu þess, að því opinbera beri að stuðla að því í ríkari mæli en gert hefir verið hingað til, að efla flugmál hér á landi. Ég geng þess ekki dulinn frekar en áreiðanlega margir aðrir hv. þm., að reynslan er þegar búin að sýna greinilega, að flugmál hljóta að eiga hér mikla framtíð, og okkar vegur verður þá mestur, að við ekki látum dragast úr hömlu fram að sýna, að einnig Alþ. sem heild skilji þessa þörf þjóðarinnar. Flugferðir ryðja sér æ meir og meir til rúms hjá öllum menningarþjóðum, en mér er nær að halda, að óvíða sé meiri þörf fyrir flugsamgöngur en einmitt á Íslandi.
Um 1. brtt. á þskj. 352, um styrk til flóabátaferða, sem er flutt af samvn. samgöngumála, vil ég leyfa mér að vísa til ræðu hv. frsm. samvinnun., þm. v.-Sk. Skal ég láta mér nægja með þeim rökum, sem hann færði fram, og þeim rökum, sem greind eru í nál. samvn., að leggja áherzlu á, að sú till. verði samþ.
Þá vil ég einnig leyfa mér að mælast til þess, að Alþingi taki vel í VI. till. á þskj. 365, sem flutt er af hv. þm. Barð. og nokkrum öðrum hv. þm., um að hækka framlagið til Fiskifélagsins úr 75 þús. upp í 85 þús. Það er enginn vafi, að ef Fiskifélagið á að geta haldið uppi svipuðu starfi og það hefir gert að undanförnu, þá er þetta nauðsynleg fjárveiting. Það væri ekki heldur óeðlilegt, að Alþ. hækkaði nú nokkuð fjárveitingu til þessa félags, þar sem það hefir áður lækkað fjárveitinguna til þess, og ekki síður fyrir hitt, að það hefir haft fullan skilning á starfsemi annars hliðstæðs félags, Búnaðarfélags Íslands, og veitt ríkulega fé til þess að halda henni uppi.
Ég sé ekki ástæðu til að gera aðrar brtt., sem hér liggja fyrir, að umtalsefni, og eins og ég gat um í upphafi máls míns, tel ég ekki ástæðu til að gera fjárl. almennt að umtalsefni, en vísa þar aðeins til ræðu hæstv. fjmrh. Ég vil þó aðeins segja það, að ég tel nauðsynlegt, að flokkar þeir, sem að stj. standa, hafi um það samstarf, að beita sér um allan þorra till. að því að afgr. fjári. varlega. Ég lít líka svo á, að flestar þær till., sem einstakir hv. þm. hafa borið fram, beri fremur að skoða sem óskir, sem þessir þm. hafa fram að færa fyrir sín héruð eða þær persónur, sem till. fjalla um, heldur en kröfu um, að till. nái fram að ganga. Ég þykist vita, að ábyrgðartilfinning þeirra sé svo rík, að þeir geti sætt sig við, að till. þeirra verði vísað á bug, ef það gengur almennt yfir, svo að hægt sé að segja, að ekki sé þar um misrétti að ræða.