26.03.1940
Neðri deild: 22. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 320 í B-deild Alþingistíðinda. (749)
39. mál, slysabætur á ellilaun og örorkubætur
Frsm. (Vilmundur Jónsson):
Allshn. hefir athugað brtt. á þskj. 157, frá hv. 4. þm. Reykv., og hefir orðið ásátt um að ganga lítið eitt til móts við hana. Í því skyni hefir n. borið fram brtt. á þskj. 180, þar sem segir, að í stað orðanna „er nemi sama hundraðshluta“ komi: er nemi allt að sama hundraðshluta. — Ber að skilja þetta svo, að sveitarfélög eru ekki aðeins sjálfráð um, hvort þau láta nokkuð af hendi rakna til þessara uppbóta eða ekki neitt, heldur eiga þau líka kost á tilsvarandi framlagi úr ríkissjóði, gegn þeim hluta, sem þau tiltaka í þessu skyni, hvort sem meira er eða minna. Ég vil auk þess vekja athygli á því, að till. hv. 4. þm. Reykv. fær naumast staðizt með því orðalagi, sem á henni er, enda geri ég ekki ráð fyrir, að hann meini það með henni, sem orðanna hljóðan bendir til. Í brtt. er talað um, að framlag sveitarfélaga eigi ekki að vera minna en helmingur hundraðshluta vísitölunnar. Nú er vísitalan 112, og ½% af 112 yrði nokkurn veginn sama sem ekki neitt, svo að hv. flm. hlýtur að meina annað með till. en skilizt getur við lestur hennar.
Hv. þm. V.-Húnv. á brtt. við frv. á þskj. 203. N. hefir ekki gefizt kostur á að athuga hana, en eftir afstöðu n. til málsins geri ég ráð fyrir, að hún muni ekki fallast á þessa brtt. Það hefir verið rökstutt í umr. um þetta mál hér í hv. d., að ekki sé ósanngjarnt, að gamalmenni og öryrkjar fái hærri bætur en jafnvel þeir, sem eru lægst launaðir, með tilliti til þess, að þetta fólk mun almennt vera aumast allra.