26.03.1940
Neðri deild: 22. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 347 í B-deild Alþingistíðinda. (817)
60. mál, bifreiðalög
*Frsm. (Gísli Sveinsson):
Herra forseti! Ég mæltist til þess síðast, þegar þetta mál lá fyrir hv. d. til 2. umr., að það yrði afgr. óbreytt og að brtt., sem þá lágu fyrir, yrðu teknar aftur til 3. umr., svo að n. gæfist færi á að athuga þær og bera fram brtt., sem nú eru fram komnar á þskj. 200. Þær eru við þann kafla, sem er um vátryggingu og skaðabætur bifreiða, og þau efni, sem þar heyra undir, sem sé, þegar slys verða við akstur, hvernig skuli bæta. Þá kom hv. 1. þm. Rang. með brtt. við 34. gr., á þskj. 153. Ég gat þess áður, að væntanlega gæti þessi hv. þm. sætt sig við þá umorðun á brtt., sem ætti að koma fram og er komin fram frá n. á þskj. 200, og býst ég við, að hann taki til athugunar, hvort hann geti ekki tekið aftur sína brtt. Ég skal geta þess, að brtt. á þskj. 200 er komin fram eftir grandgæfilega athugun, sem gerð hefir verið í þessum efnum með samanburði við löggjöf þá, sem nú er í gildi á Norðurlöndum, og till., sem þar hafa komið fram um það, hvernig slík löggjöf þar ætti í raun og veru að vera.
Þessar brtt. hefir einn af hæstaréttardómurunum undirbúið. Við höfum ekkert við brtt. við 34., 35., og 36. gr. bifreiðal. að athuga. Allt er þetta mál svo undirbúið frá fyrri þingum og stjórnarvöldum, sem hér hafa fjallað um málin, að það orkar ekki tvímælis, að þau eigi fram að ganga í því formi, sem þau eru nú.
Viðvíkjandi því, að brtt. hafa komið fram við þetta frv., þá er það að segja, að í öðru frv., sem hér er á dagskránni, frv. til umferðarlaga, er farið inn á nýtt svið hvað umferð snertir, og lagt til, að tekinn sé upp hægri handar akstur og umferð. Það hafa verið færð fyrir því þau rök, að ég tel ekki, að neinu þurfi við það að bæta. En það hefir ekki komið neitt fram, sem geri það að verkum að snúa mér eða þeim hluta n., sem er með því, að nú skuli gera þessa breyt. Og hefi ég engar till. um það fram að bera. En ég vænti þess, að hæstv. ráðh., sem hér er í d., sem er sá ráðh., sem ætlazt er til, að fari með þessi mál, og hefir samþ., að þetta frv. skyldi koma fram, vilji skýra þetta.
Þá er brtt. á þskj. 149 frá hv. þm. Mýr. og hv. 6. þm. Reykv. Um það verða hv. þm. að skera úr með atkv. sínu, hvort þeir vilja fara inn á efni þeirrar brtt. En það á í raun og veru ekki að hindra framgang þessa máls, bifreiðal., hvernig með þessa brtt. fer, því að það er hvort sem er víst, að þetta frv. verður að l. fyrr eða seinna í því formi, sem það er nú, og ekki hafa komið fram neinar rökstuddar aths. við það í heild. Það er þörf á, að þessi ákvæði verði lögleidd í þessu formi. Og umferðarl. er nauðsynlegt að setja, eins og komið er hér á landi, hvað sem líður hægri handar akstri.
Ég vil svo leggja til, að frv. til bifreiðal. verði samþ. af hv. d. með þeim breyt. frá n., sem eru á þskj. 200.