26.03.1940
Neðri deild: 22. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 355 í B-deild Alþingistíðinda. (824)
60. mál, bifreiðalög
*Forsrh. (Hermann Jónasson):
Ég er þakklátur fyrir það, ef menn benda á sitthvað, sem betur má fara í búningi frv. og málfari, þótt þeir menn, sem undirbjuggu það, hafi að mínu áliti gert það mjög vel. En ég er hræddur um, að varla sé hægt að finna neitt til að setja í staðinn fyrir að „aka fram úr“, svo að bílstjórar skilji, hvað við er átt. Þetta er fast orðasamband í máli þeirra, notað, þegar tvær bifreiðar aka í sömu átt og hin hraðari fer framhjá hinni og rennur síðan á undan henni. Orðin að „fara framhjá“ eru höfð, þegar farið er hjá því, sem stendur kyrrt, en „fara fram fyrir“ getur þýtt að fara í veg fyrir, og má ekki blanda því saman. Auk þessa er það rétt íslenzka, að „fara fram úr“ einhverjum (JörB: Það er meira að segja fornt mál). Því heldur er óhætt að nota það. — Samt sem áður trúi ég því, að það kunni að mega bæta orðalag á ýmsu í frv. Það hefir verið undirbúið af lögreglustjóra, vegamálastjóra og einum af dómurum hæstaréttar og breytt í samræmi við fengna reynslu á sem flestum sviðum, margra ára íhugun og fjölda dóma. Það hefir komið í ljós, að gallar hafa verið á gildandi bifreiðalögum, og þótti vera aðkallandi fyrir 5 árum að ráða bót á þeim, þótt ekki hafi verið hægt fyrr en nú. Þess vegna má samþykkt frv. ekki dragast fleiri ár, og breyt., sem menn vilja gera á frv., verða að vera í fullu samræmi við þann rækilega undirbúning, sem það hefir fengið.
Ég skal ekki orðlengja um breyt. úr vinstri umferð í hægri. Það hefir verið viðurkennt, að slysahættan af því sé ekki mikil, og upplýst er, að þetta hefir tekizt vel, þar sem breytt hefir verið um erlendis. Helzt voru það gamlir hestar og uxar, sem áttu erfitt með það fyrstu 7–8 vikurnar að fylgja nýrri venju.