27.03.1940
Neðri deild: 23. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 365 í B-deild Alþingistíðinda. (857)
73. mál, dómkirkjan í Reykjavík og skipting Reykjavíkur í prestaköll
*Gísli Guðmundsson:
Ég vil ekki neita því, að ég tel mjög virðingarvert að vilja efla kirkju1íf og kristnihald í landinu. Eigi að síður verð ég að taka undir með hv. 2. þm. Skagf., að þetta frv., sem hér liggur fyrir, kemur mér undarlega fyrir sjónir. Ég vil taka fram, að ég mun ekki greiða því atkv., a. m. k. á þessu stigi málsins. En ég mun verða því samþykkur að vísa málinu til fjhn., áður en það yrði endanlega afgr. Mér virðist, að í þessu frv. felist 2 höfuðatriði, og sé ég ekki, að þau þurfi að fara saman. Annað er að fjölga þjónandi prestum í Reykjavík, en hitt er ákvæði um, að ríkið leggi fram 300 þús. kr. til kirkjubygginga í Reykjavík. Mér skilst svo, að hið síðara sé aðalatriðið fyrir hv. kirkjumálaráðh. og menntmn., sem er formælandi þessa frv. En ég get vel skilið, þó að fram komi raddir um að fjölga prestum hér í bænum, því hvernig svo sem litið er á starf presta og hvort sem það er talið nauðsynlegt eða ekki, þá er það svo umfangsmikið hér í bænum, að ekki veitir af fleiri prestum. Þess vegna finnst mér full sanngirni í því að fjölga prestum í Reykjavík. En mér finnst ekki þörf á því, að ríkið fari að leggja mikið fé fram til kirkjubygginga. Ég er þessum málum ekki vel kunnugur, en þar, sem ég þekki til, hefi ég ekki orðið var við, að ríkissjóður hafi lagt fram fjárfúlgur til kirkjubygginga. En nú var gerð undantekning í þessum efnum, þar sem samþ. var, að ríkið legði fram fé til kirkjubyggingar á Akureyri. Ég er ákaflega undrandi yfir þessu og tel enga ástæðu til slíks framlags. Þó að þetta væri gert einu sinni, er ekki rétt að halda áfram á þessari braut. Ég held, að til þess að efla kristnihald í landinu sé ýmislegt nauðsynlegra en að fjölga kirkjum. Ýmsar umbætur hafa orðið í landinu á síðari árum, sem gera það að verkum, að kirkjur eru nú ekki orðnar jafnnauðsynlegar fyrir útbreiðslu kristindómsins og þær voru áður. Sérstaklega á ég þar við útvarpið, og enginn vafi er á því, að margt fólk, ekki sízt í Reykjavík, kýs heldur að hlusta heima hjá sér á guðsþjónustur en að sitja í mannþröng í stóru húsi til að hlýða á þetta sama guðsorð. Ég er búinn að eiga heima hér í bænum í 10 ár, og ein af þeim fáu byggingum, sem ég hefi ekki orðið var við, að væri skortur á, er kirkjan. Ég man ekki heldur eftir því, að ég hafi orðið að snúa frá kirkju vegna þrengsla. Reyndar er ég ekki eins kirkjurækinn og hv. 1. þm. Rang., en ég fer það oft, að mikil og almenn þrengsli í guðshúsum myndu ekki fara framhjá mér. Ef svo væri nú, að eigi að síður vantaði kirkjur, sem ég dreg mjög í efa, þá er ég þeirrar skoðunar, að þeir góðu menn hér í bænum, sem þykjast hafa of lítið af guðsorði, eigi sjálfir að standa straum af þessum byggingum. Annars mætti búast við, að aðrir söfnuðir landsins færu að gera sömu kröfu um ríkisframlag til sinna kirkna.
Ég hefi ekki haft tíma til að kynna mér rækilega grg. þessa frv. Þar stendur á einum stað, að í álíka stórum bæjum og Rvík muni erlendis vera að jafnaði 10-12 kirkjur. Ég veit ekki, hvort þetta er rétt, en þangað til færð hafa verið rök fyrir því, vil ég leyfa mér að draga í efa, að svo sé. Ég hefi komið í nokkru erlenda bæi, og mér hefir ekki virzt bera svo mikið á þessum byggingum, að þetta geti staðizt. Ég vænti þess, að hv. menntmn, geti gefið ítarlegri upplýsingar um þetta.
Ég skal svo ekki eyða fleiri orðum í þetta, en ég mun styðja till. hv. 2. þm. Skagf. um að vísa málinu til fjhn.