27.03.1940
Neðri deild: 23. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 366 í B-deild Alþingistíðinda. (858)
73. mál, dómkirkjan í Reykjavík og skipting Reykjavíkur í prestaköll
*Frsm. (Ásgeir Ásgeirsson):
Það hefir verið dregið í efa, að þessu máli lægi á að vera afgr. á þessu þingi. Ég skal ekki gera tilraun til að sanna, að það sé lífsnauðsynlegt, að málið fái einmitt afgreiðslu nú á þessu ári, en ekki því næsta. En mér heyrðist það á umr., að þeir sem vildu fresta málinu til næsta árs, hefðu ekkert á móti því að fresta því líka til næsta árs þar á eftir, o. s. frv. Þó er ein ástæða til, að kirkjumálastj. vildi láta afgr. frv. einmitt á þessu ári, og mun ég nú gera grein fyrir henni. Það hefir staðið til í vetur að skipa prest í autt sæti í Reykjavík, því að nú eru ekki nema 3 þjónandi prestar. Samkv. heimild, sem nú er gildandi, mátti skipa þann fjórða, en þessi viðbótarprestur er ekki kosinn af söfnuðinum. Vakti þetta talsverða óánægju í bænum, svo að kirkjumálastj. kom til hugar að fá prestakallaskiptingu lögsetta í Reykjavík, og ráðning þessa fjórða prests skyldi bíða eftir afgreiðslu málsins. Um leið átti svo að koma með till. um framtíðarskipun þessara mála í Reykjavík. Frá þessu vildi ég skýra, ef það hefði þau áhrif, að málið yrði frekar afgr. nú á þessu þingi.
Það er rétt, sem kom fram í umr., að ríkið væri ekki vant að styrkja kirkjubyggingar. En ríkið hefir hér alveg sérstaka aðstöðu, þar sem það er sjálft kirkjuhaldari í Reykjavík, og venjan er, að kirkjuhaldarinn semji við söfnuðinn, er hann tekur við kirkjunni. Það hefir oft verið um það talað í þinginu, hvað ríkið ætti að greiða mikið með kirkjunni, ef hún yrði afhent söfnuðinum. Ég hygg, að sú upphæð, sem hér er stungið upp á, sé nokkuð nærri sanni, en um það má lengi deila, hve mikið eigi að borga með kirkjunni.
Ég man ekki, hvort það stendur í nál., að svo margar kirkjur séu í erlendum bæjum, að ein komi fyrir hverja 5 þús. menn. En ég hygg að í nál. standi, að ekki komi fleiri safnaðarmeðlimir á hvern prest en 5 þús., og við allar stærri kirkjur eru fleiri en einn prestur.
Ég hefi svo ekki fleiru að svara, en vil að lokum skjóta því til ríkisstj., að ég tel það athugandi í sambandi við framkvæmd málsins, hvort ekki ætti að semja við fríkirkjuna um að sameinast við þjóðkirkjuna. Ég veit ekki, hvort þetta er viðkvæmt lengur, en það væri eðlilegast, að okkar kirkja skiptist ekki í fleiri deildir, heldur væri undir þaki einnar þjóðkirkju. Mér finnst vera tímabært að gera fríkirkjusöfnuðinum þetta tilboð.