05.04.1940
Sameinað þing: 14. fundur, 55. löggjafarþing.
Sjá dálk 151 í B-deild Alþingistíðinda. (86)
1. mál, fjárlög 1941
Jón Ívarsson:
Herra forseti! Ég á fáar brtt. við þetta frv. til fjárl., sem hér liggur fyrir, en vil gera grein fyrir þeim með fáeinum orðum. Á þskj. 327, XXII, á ég till. um, að Sigríði Steingrímsdóttur verði veittur lífeyrir, 200 kr. Þessi kona er ekkja Sigurðar Péturssonar í Arnanesi, sem um langt tímabil var póstur milli Prestsbakka og Bjarnaness í Hornafirði, og jafnvel til Eskifjarðar, en einnig milli Prestsbakka og Edda á Rangárvöllum. Hún er nú orðin aldurhnigin, en hefir aldrei fengið nein eftirlaun, þótt margar póstsekkjur aðrar hafi fengið þau. vænti ég, að háttv. Alþingi sjái sér fært að veita hið umbeðna, svo bætt sé lítilsháttar úr því, hve lengi hún hefir verið sett hjá um slíkan styrk.
Þá á ég brtt. á sama þskj., IX, ásamt hv. þm. V.-Ísf., um það, að Höskuldi Björnssyni málara verði veittur byggingarstyrkur, 2000 kr. Hann hafði styrk á fjárlögum ársins 1939, sömu upphæð og nú er farið fram á, og skilst mér, að það hafi verið nokkurskonar samningur milli fjvn. og hans, að hann fengi þessa upphæð í 3 ár, til þess að hann gæti byggt, og vænti ég þess vegna, að þingið geti samþ. það, sem hér er farið fram á. Höskuldur er efnilegur málari, og er hann sérstaklega þekktur fyrir fuglamálverk og málverk af öðrum dyrum. Hefir hann haft málverkasyningar hér í bænum og fengið góða dóma. Ætti því till. þessi að fá nægilegt fylgi til þess að verða samþ.
Í þriðja lagi á ég brtt. á þskj. 308, XXXVIII. liður, að veita til ræktunarvegar í Höfn í Hornafirði kr. 1000.00. Í Höfn í Hornafirði hafa verið teknir til ræktunar um 60 hektarar lands og mestur hl. þess er nú þegar fullræktaður. Eins og gefur að skilja, er mikil þörf á bættum vegum um ræktuðu löndin og virðist því till. þessi eiga fullan rétt á sér.
Þótt hingað til hafi ekki verið veitt fé til annara ræktunarvega en í eyjum, virðist full ástæða til þess að styrkja vegalagningu einnig á öðrum stöðum, og tel ég, að á þessum stað yrði slíkt fjárframlag að verulegu gagni og ætti háttv. Alþingi því að samþ. þessa litlu fjárveitingu.
Ég vænti, að þessar brtt., sem ég nú hefi nefnt, finni náð hjá hv. þm., og að þær geti komizt inn í fjárl. fyrir árið 1941, ásamt öðrum gagnlegum till., sem samþ. kunna að verða.
Ég sé ekki ástæðu til að orðlengja þetta frekar, en vil vænta hins bezta.